„Ég er nú ekki að velta því mikið fyrir mér hvaða sæti okkur er spáð," segir Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, þegar honum er tjáð að FH er spáð níunda sæti Bestu deildarinnar í spá Fótbolta.net fyrir mótið.
„En ég veit að við munum enda ofar en það og koma fólki skemmtilega á óvart."
„En ég veit að við munum enda ofar en það og koma fólki skemmtilega á óvart."
Spenntur að snúa aftur
Jói Kalli er mættur aftur í Bestu deildina eftir að hafa þjálfað í Danmörku og verið aðstoðarþjálfari landsliðsins. Hann er spenntur að mæta aftur í deildina eftir að hafa síðast stýrt ÍA í henni árið 2022.
„Ég er orðinn mjög spenntur að mæta aftur í Bestu deildina. Hún hefur styrkst mjög mikið undanfarin ár og umgjörðin og umfjöllunin alltaf að verða betri og betri. Ég hef mikla trú á að þetta tímabil verði áframhald af því," segir Jói Kalli.
Hann segir að það hafi gengið ágætlega hjá FH-ingum á undirbúningstímabilinu í vetur.
„Það hefur bara gengið ágætlega. Við höfum æft vel og leikmenn hafa verið tilbúnir að leggja hart að sér. Úrslitin hafa verið þokkaleg en við vitum að við getum gert betur. Auðvitað skiptir mestu máli hvernig við mætum til leiks þegar mótið byrjar og við ætlum okkur svo sannarlega að gera það."
Ertu ánægður með það hvernig leikmannahópurinn lítur út?
„Ég er frekar sáttur með hópinn eins og hann er en það er ekkert leyndarmál að við viljum styrkja hópinn ef réttu leikmennirnir verða fáanlegir," bætir Jói Kalli við.
Horfa í efri hlutann
FH er ekki spáð góðu gengi fyrir sumarið en markmiðið hjá liðinu er að komast í efri hlutann.
„Við setjum stefnuna á að komast í efri hluta umspilið," sagði Jói Kalli og bætti við að lokum:
„Ég lofa FH-ingum að liðið sem mætir til leiks í ár verði alvöru lið. Við ætlum að spila beinskeyttan og skemmtilegan fótbolta sem fólk hefur gaman af að horfa á. En umfram allt munu stuðningsmenn sjá lið sem ber virðingu fyrir félaginu, spilar af stolti fyrir FH og er tilbúið að gera allt sem þarf til að vinna leiki."
Athugasemdir



