Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
banner
fimmtudagur 26. mars
Landslið karla - U21 - Undankeppni EM
laugardagur 21. mars
Bose-bikarinn Úrslit
Úrslit Lengjubikarsins
miðvikudagur 18. mars
Úrslit Þungavigtarbikarsins
þriðjudagur 17. mars
Undanúrslit Lengjubikarsins
laugardagur 14. mars
laugardagur 7. mars
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 3. mars
fimmtudagur 26. febrúar
Vináttulandsleikur
miðvikudagur 25. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 3. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 2. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 1. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Evrópukeppni unglingaliða
þriðjudagur 30. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
mánudagur 29. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 28. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 27. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 26. september
Fótbolti.net bikarinn
mánudagur 22. september
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 17. september
Lengjudeild karla - Umspil
mánudagur 15. september
Besta-deild karla
þriðjudagur 24. mars
Meistaradeild kvenna
Wolfsburg W - Lyon W - 17:45
Arsenal W - Chelsea W - 20:00
Vináttuleikur
Vietnam U-23 - Korea DPR U-23 - 07:00
þri 24.mar 2026 12:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina: 9. sæti

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að FH muni enda í 9. sæti Bestu deildarinnar í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. FH verður í neðri hlutanum ef spáin rætist.

FH fagnar marki á síðasta tímabili.
FH fagnar marki á síðasta tímabili.
Mynd/Fótbolti.net - J.L.
Jóhannes Karl Guðjónsson er nýr þjálfari FH.
Jóhannes Karl Guðjónsson er nýr þjálfari FH.
Mynd/FH
Sænski miðvörðurinn Tobias Carlsson.
Sænski miðvörðurinn Tobias Carlsson.
Mynd/FH
Kjartan Kári er lykilmaður.
Kjartan Kári er lykilmaður.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Nói er mjög spennandi.
Viktor Nói er mjög spennandi.
Mynd/FH
Jökull Andrésson er mættur í markið hjá FH.
Jökull Andrésson er mættur í markið hjá FH.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kári Kristjánsson kom frá Þrótti.
Kári Kristjánsson kom frá Þrótti.
Mynd/FH
Adolf Daði Birgisson og Gils Gíslason, tveir leikmenn sem vert er að fylgjast með í sumar.
Adolf Daði Birgisson og Gils Gíslason, tveir leikmenn sem vert er að fylgjast með í sumar.
Mynd/Twitter/FHingar
Tómas Orri var frábær á síðasta tímabili.
Tómas Orri var frábær á síðasta tímabili.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Baldur Kári er uppalinn FH-ingur.
Baldur Kári er uppalinn FH-ingur.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðvörðurinn Ísak Óli Ólafsson.
Miðvörðurinn Ísak Óli Ólafsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hvað gerir FH í sumar?
Hvað gerir FH í sumar?
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. FH, 46 stig
10. Þór, 36 stig
11. ÍBV, 22 stig
12. Keflavík, 17 stig

Um liðið: Það hefur verið mikið rætt og ritað um FH í vetur. FH-ingar réðust í breytingar eftir síðasta tímabil þar sem goðsögnin Heimir Guðjónsson hvarf á braut og Jóhannes Karl Guðjónsson tók við störfum af honum. Þetta voru ekki hljóðlát þjálfaraskipti ef svo má að orði komast en Heimir og Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH, fóru í hálfgert orðastríð í fjölmiðlum. Svo blandaði Ólafur Jóhannesson, sem náði á sínum tíma mögnuðum árangri sem þjálfari FH, sér í málin og gagnrýndi það hvernig Jói Kalli talaði eftir að hann tók við. Það er óhætt að segja að það hafi gustað um FH í vetur og er liðinu ekki spáð frábæru gengi þetta sumarið. Heimir kom FH í efri hlutann síðustu tímabil og kom stöðugleika á liðið, en núna eru nýir tíma í Kaplakrika.

Þjálfarinn: Eins og kemur fram hér að ofan þá tók Jóhannes Karl Guðjónsson við stjórnartaumunum hjá FH í vetur. Jói Kalli er fyrrum landsliðs- og atvinnumaður en á þjálfaraferlinum hefur hann stýrt HK, ÍA og AB í Danmörku ásamt því að hafa verið aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins. Ráðningin á Jóa Kalla er til marks um nýja tíma hjá FH. Hann hefur tekið stórar ákvarðanir í vetur, eins og láta Böðvar Böðvarsson fara, og hann þarf að vinna sér inn trú og traust hjá stuðningsmönnum FH. Jói Kalli talaði um það eftir að hann var ráðinn til FH að Besta deildin væri of gömul og hann ætlaði sér að yngja upp í leikmannahópnum en að sama skapi væri markmiðið að koma FH aftur í fremstu röð á sem skemmstum tíma.

Styrkleikar: FH er eitt fárra liða í deildinni sem spilar á náttúrulegu grasi og hefur heimavöllurinn reynst þeim drjúgur síðustu árin. Kaplakrikavöllur á að vera mikill styrkleiki fyrir FH i sumar. Vörnin er ágætlega mönnuð og liðið á að gera kröfur á nýjan markmann sem hefur sýnt að hann er mjög öflugur á milli stanganna. Í liðinu eru nokkrir ungir og efnilegir leikmenn sem ættu að geta tekið næsta skref með liðinu í sumar. Ber þar helst að nefna Baldur Kára Helgason og Tómas Orra Róbertsson. Auðvitað má svo ekki gleyma Kjartani Kára Halldórssyni sem er einn besti leikmaður deildarinnar á sínum degi.

Veikleikar: Það hefur mikið farið úr liðinu frá síðustu leiktíð. Heimir Guðjónsson hefur kreist mikið úr FH-liðinu síðustu árin og hann er dáður og dýrkaður í Kaplakrika. Það verður auðvitað mikill söknuður af svona sigurvegara. Svo eru Böðvar Böðvarsson og Björn Daníel Sverrisson líka farnir og með þeim fer ótrúlega stórt FH hjarta. Eftir að þeir eru farnir sér maður ekki marga leiðtoga í leikmannahópnum. Þeir vita hvað félagið snýst um og hvað þurfti til að vinna. Sigurður Bjartur Hallsson fór líka en hann var einn heitasti leikmaður Bestu deildarinnar á síðasta tímabili og í fljótu bragði sér maður ekki hver á að fylla í hans skarð. Gullaldarlið FH var með afgerandi markaskorara í Atla Viðari Björnssyni, Tryggva Guðmundssyni og Allan Borgvardt en það vantar alveg klárlega núna. Svo sagði Davíð Þór, yfirmaður fótboltamála, eftir síðasta tímabil að liðið ætti að gera betur í sendingatölfræði, sendingum fram á við og pressutölum þannig að við setjum það líka hér inn.

Lykilmenn: Tobias Carlsson og Kjartan Kári Halldórsson
Eftir að Björn Daníel og Böðvar fóru frá félaginu þá hrópar það á mann að það vanti leiðtoga inn í hópinn. Það er vonandi fyrir FH að sænski miðvörðurinn Tobias Carlsson geti verið sá leikmaður sem kemur inn með þá eiginleika. Tobias er reynslumikill hafsent sem hefur spilað þónokkra leiki í sænsku úrvalsdeildinni og hann verður að stíga upp í það hlutverk fljótt að vera lykilmaður í þessu liði. Það er ekki mikil reynsla í FH-liðinu og Carlsson er einn fárra í hópnum með mikla reynslu á bakinu. Kjartan Kári þarf að stíga enn frekar upp eftir að Sigurður Bjartur fór og setja sóknarleikinn á herðar sínar. Hefur alla burði til að vera með bestu leikmönnum deildarinnar þessi öflugi leikmaður.

Gaman að fylgjast með: Viktor Nói Viðarsson
Viktor Nói er nýmættur til félagsins frá Gent í Belgíu. Viktor, sem er átján ára gamall, er sonur Arnars Þórs Viðarssonar fyrrum landsliðsþjálfara Íslands. Hann hefur búið alla ævi í Belgíu og hefur hann spilað fyrir yngri landslið Belga þar sem hann var meðal annars fyrirliði. Fyrir rúmu ári síðan valdi hann að spila fyrir Ísland og hefur hann leikið níu leiki fyrir U19 landsliðið. Íslenskir fótboltaáhugamenn vita ekki mikið um þennan leikmann og það verður gríðarlega spennandi að sjá hann í Bestu deildinni í sumar.

Spurningarnar: Hvernig kemur Jói Kalli inn í þetta? Hvernig verður markvarslan? Hvaða ungu strákar munu vekja athygli?

Völlurinn: Kaplakriki er einn glæsilegasti völlur landsins. Þetta er leikvangur. Svæði FH er stórt og þar eru nokkur fótboltahús ásamt Kaplakrikavelli. Það er stúka báðum megin og þarna er mikil saga. Mögulega verður komið hybrid-gras á völlinn þegar næsta tímabil gengur í garð.

Komnir:
Jökull Andrésson frá Aftureldingu
Kári Kristjánsson frá Þrótti R.
Adolf Daði Birgisson frá Stjörnunni
Sverrir Páll Hjaltested frá ÍBV
Tobias Carlsson frá Svíþjóð
Viktor Nói Viðarsson frá Belgíu
Aron Jónsson frá Aftureldingu
Kristján Snær Frostason frá HK
Arnór Borg Guðjohnsen frá Vestra (var á láni)
Gils Gíslason frá ÍR (var á láni)
Axel Marcel Czernik frá Breiðabliki

Farnir:
Sigurður Bjartur Hallsson til Spánar
Björn Daníel Sverrisson hættur og tekinn við Sindra
Böðvar Böðvarsson í ÍA
Ahmad Faqa til AIK (var á láni)
Bjarni Guðjón Brynjólfsson í Þór á láni
Bragi Karl Bjarkason í Njarðvík
Einar Karl Ingvarsson í Hauka
Jóhann Ægir Arnarsson í Njarðvík á láni
Mathias Rosenörn
Dagur Örn Fjeldsted í Breiðablik (var á láni)



Leikmannalisti:
1. Jökull Andrésson (m)
24. Daði Freyr Arnarsson (m)
2. Birkir Valur Jónsson
3. Kristján Snær Frostason
5. Tobias Carlsson
6. Grétar Snær Gunnarsson
7. Kjartan Kári Halldórsson
8. Kári Kristjánsson
10. Sverrir Páll Hjaltested
13. Ketill Orri Ketilsson
14. Adolf Daði Birgisson
17. Aron Jonsson
18. Kristján Flóki Finnbogason
22. Ísak Óli Ólafsson
23. Tómas Orri Róbertsson
27. Jóhann Ægir Arnarsson
31. Ísak Atli Atlason
32. Gils Gíslason
33. Úlfur Ágúst Björnsson
35. Allan Purisevic
36. Arngrímur Bjartur Guðmundsson
37. Baldur Kári Helgason
38. Viktor Nói Viðarsson
39. Benjamín Bæring Þórsson
40. Róbert Hugi Sævarsson
45. Ísak Eldur Ófeigsson
90. Arnór Borg Guðjohnsen

Fyrstu fimm leikir FH:
12. apríl, ÍBV - FH (Hásteinsvöllur)
17. apríl, Stjarnan - FH (Samsungvöllurinn)
22. apríl, FH - Valur (Kaplakrikavöllur)
26. apríl, KR - FH (Meistaravellir)
3. maí, FH - Fram (Kaplakrikavöllur)

Spámennirnir: Anton Freyr Jónsson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Haraldur Örn Haraldsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Sölvi Haraldsson, Tómas Þór Þórðarson og Valur Gunnarsson.
Athugasemdir
banner