Það var tilkynnt fyrr í kvöld að Mohamed Salah muni yfirgefa Liverpool að tímabilinu loknu.
Salah hefur skorað 255 mörk í 435 leikjum fyrir Liverpool. Hann hefur unnið allt sem hægt er að vinna með félaginu og er án efa einn besti leikmaður í sögu félagsins.
Salah hefur skorað 255 mörk í 435 leikjum fyrir Liverpool. Hann hefur unnið allt sem hægt er að vinna með félaginu og er án efa einn besti leikmaður í sögu félagsins.
Hinn 33 ára gamli Salah skrifaði undir nýjan tveggja ára samning undir lok síðasta tímabils, en hann mun ekki klára þann samning.
Samkvæmt talkSPORT hefur Salah í raun gengið frá síðasta ári samnings síns við Liverpool þar sem hann þénaði um 400.000 pund á viku til að geta farið frítt frá félaginu. Í heildina eru þetta um 20 milljónir punda sem félagið sparar og getur nýtt á leikmannamarkaðnum.
Talið er að viðræður um brottför hans hafi hafist áður en Afríkukeppnin fór af stað í lok desember en um það leyti fór Salah í eftirminnilegt viðtal þar sem hann lýsti yfir óánægju sinni með Arne Slot, núverandi stjóra Liverpool.
Salah var leikmaður ársins á Englandi á síðasta tímabili en hefur ekki fundið sama takt á þessari leiktíð. Hann hefur aðeins gert fimm mörk í 22 deildarleikjum.
Hvað næst fyrir Salah?
Fyrst Salah er að fórna þessari stóru fjárhæð þá verður að teljast líklegt að næsta skref hans verði í Sádi-Arabíu. Þar myndi hann verða einn allra launahæsti fótboltamaður í heimi. Það er svo sannarlega augljósi kosturinn og hann myndi þá fara til Al-Hilal, Al-Nassr, Al-Ahli eða Al-Ittihad en þessi félög eru öll í eigu stjórnvalda í Sádi-Arabíu.
Independent tók saman lista yfir aðra möguleika. Næst á lista þar er MLS-deildin sem er sagður heillandi kostur fyrir Salah. Inter Miami væri raunhæfur áfangastaður, enda hefur félagið sýnt að það getur laðað til sín stórstjörnur. Salah gæti því mögulega bæst í hóp með Lionel Messi og Luis Suárez og klárað ferilinn í Bandaríkjunum. Félag David Beckham er þó ekki það eina í MLS sem hefur slíkt aðdráttarafl.
Það er þó alls ekki gefið að Salah færi sig yfir í svokallaða „eftirlaunadeild“. Ef hann hefur löngun til að spila enn á hæsta stigi eru Paris Saint-Germain og Real Madrid möguleikar. Þessi félög hafa efni á laununum hans og gætu haft áhuga.
Salah gæti einnig snúið aftur á gamlar slóðir á Ítalíu. Inter er sterkasta lið Serie A um þessar mundir, en Napoli hefur einnig sýnt að félagið getur tekið við eldri leikmönnum úr ensku úrvalsdeildinni þar sem Kevin De Bruyne hefur blómstrað á tímabilinu.
Síðasta félagið sem er nefnt er svo Galatasaray í Tyrklandi. Einhvers staðar á milli elítufótbolta í Evrópu og svokallaðra „eftirlaunadeilda“ gæti Salah valið stóran samning í Tyrklandi þar sem hann gæti áfram spilað í Meistaradeildinni. Þrátt fyrir frekar dapurt tímabil á mælikvarða hans átti Egyptinn einn af sínum bestu leikjum þegar Liverpool sló Galatasaray út úr Meistaradeildinni. Spurningin er hvort það hafi sannfært tyrkneska félagið um að reyna að fá hann til sín.
Það eru alls konar möguleikar í boði fyrir Salah en eins og áður segir er langlíklegast að hann fari til Sádi-Arabía og verði stjarna á himinháum launum þar í landi.
Athugasemdir

