Fotbolti.net
24.04.26 - 21:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deild kvenna: Jasmín Erla hetja Víkings - Breiðablik lagði Þrótt

Besta deild kvenna: Jasmín Erla hetja Víkings - Breiðablik lagði Þrótt
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Besta deild kvenna fór af stað í kvöld. Íslandsmeistarar Breiðabliks fengu Þrótt í heimsókn á Kópavogsvöll.

Blikar komust yfir eftir rúmlega hálftíma leik þegar Agla María Albertsdóttir átti frábæra sendingu á Edith Kristínu Kristjánsdóttir sem skoraði með frábæru skoti.

Aðeins fjórum mínútum síðar skoraði Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir annað mark Blika eftir frábærlega útfærða hornspyrnu.

Blikar héldu áfram að sækja í seinni hálfleik og hefðu hæglega getað bætt við fleiri mörkum en niðurstaðan 2-0 sigur Blika.

Víkingur fékk Stjörnuna í heimsókn og heimakonur voru ekki lengi að skora. Freyja Stefánsdóttir skoraði fyrsta mark Bestu deildar kvenna í ár strax á fyrstu mínútu. Hún skoraði eftir fyrirgjöf frá Jasmín Erlu Ingadóttur.

Stjarnan jafnaði metin þegar Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir skoraði eftir fyrirgjöf frá Úlfu Dís Keye Úlfarsdóttir.

Jasmín Erla, sem gekk til liðs við Víking frá Val í vetur, tryggði Víkingi sigurinn þegar hún skoraði eftir sendingu frá Jóhönnu Elínu Halldórsdóttir.
Víkingur R. 2 - 1 Stjarnan
1-0 Freyja Stefánsdóttir ('1 )
1-1 Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ('22 )
2-1 Jasmín Erla Ingadóttir ('80 )
Lestu um leikinn

Breiðablik 2 - 0 Þróttur R.
1-0 Edith Kristín Kristjánsdóttir ('35 )
2-0 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('39 )
Lestu um leikinn
Besta deild kvenna: Jasmín Erla hetja Víkings - Breiðablik lagði Þrótt
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta kvenna

#LiðLmunStig
1Breiðablik18+2537
2FH18+2437
3ÍBV18-327
4Stjarnan18+426
5Þróttur R.18-323
6Grindavík/Njarðvík18-822
7Fram18-1522
8Valur18-920
9Víkingur R.18-1120
10Þór/KA18-419
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.