Lengjudeild karla fer af stað í kvöld með tveimur leikjum og svo eru fjórir leikir á morgun.
Haraldur Árni Hróðmarsson, fyrrum þjálfari Grindavíkur, spáir í leikina sem eru framundan.
Haraldur Árni Hróðmarsson, fyrrum þjálfari Grindavíkur, spáir í leikina sem eru framundan.
Afturelding 2 - 1 ÍR (19:15 í kvöld)
Mosfellingar hafa litið vel út á undirbúningstímabilinu og slógu ÍR út úr bikarnum með góðri frammistöðu. Ég reikna með að þeir verði erfiðir heim að sækja í sumar.
Fylkir 3 - 0 Ægir (19:15 í kvöld)
Fylkismenn byrja sterkt og Ægismenn fá smá högg í fyrsta leik.
Vestri 1 - 2 Grindavík (14:00 á morgun)
Grindvíkingar fylgja eftir sterkum úrslitum í undanförnum leikjum og skella bikarmeisturunum fyirr vestan. Ingi Þór Sigurðsson verður besti maður vallarins og Christian Bjarmi leggur upp að minnsta kosti eitt mark.
Þróttur R. 1 - 0 Njarðvík (14:00 á morgun)
Stórleikur umferðarinnar og það verður ekki mikið skorað en Adam Árni laumar inn einu og ræður úrslitum.
Völsungur 0 - 3 Leiknir R. (16:00 á morgun)
Völsungar þurfa aðeins lengri tíma til að koma sér í gírinn og Leiknismenn eru á góðum stað. Dagur Ingi Hammer byrjar á marki.
HK 2 - 2 Grótta (16:00 á morgun)
HK hefur lekið mörkum í allan vetur og Grótta nær í sterkt stig í Kórnum.



