Steini: Stoltar að hafa unnið
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorsteinn Halldórsson þjálfari Breiðabliks var ánægður með þrjú stigin eftir leik Breiðabliks og ÍBV. Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði eina mark leiksins á 16.mínútu leiksins.
„Leikurinn var ekkert sérstakur, sóknarlega sérstaklega. Fengum reyndar mjög fá færi á okkur, þær opnuðu okkur nánast aldrei.\"
„Sóknarlega vorum við ekki að gera nógu vel, við héldum boltanum ekki nógu vel og vorum frekar þunglamalegar í sóknarleiknum. Skipulagið varnarlega var ágætt, \"sagði Steini þjálfari Breiðabliks ánægður eftir leik gegn ÍBV í 4.umferð Pepsi-deildar kvenna.
„Það er gott að vinna. ÍBV gott lið, með vel mannað lið með hágæða leikmönnum, með bestu leikmönnum í deildinni innanborðs og verður alltaf bara betra og betra. Við erum því bara stolt að hafa unnið þær hér í dag.\"
Viðtalið í heild má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.