Í viðtali við Kjartan Henry Finnbogason á laugardag kom upp skemmtilegt augnablik.
Kjartan spurði fréttaritara Fótbolta.net hvort honum væri kalt og bauðst til að halda í myndavélina.
Kjartan spurði fréttaritara Fótbolta.net hvort honum væri kalt og bauðst til að halda í myndavélina.
Lestu um leikinn: KR 1 - 1 Leiknir R.
Myndavélin hafði aðeins færst niður. „Er þér kalt, á ég að halda á þessu?" sagði Kjartan og brosti.
Arnar Laufdal Arnarsson fjallaði um leikinn hér á síðunni og setti inn færslu á Twitter eftir leik.
„Kann alltaf að meta þegar að menn eru léttir í viðtölum eftir leik. Kjartan bauðst til að halda á simanum minum því mér var svo kalt. Vindurinn í skjólinu kom svo sannarlega aftan að mér…" skrifaði Arnar.
Kann alltaf að meta þegar að menn eru léttir í viðtölum eftir leik. @kjahfin bauðst til að halda á simanum minum því mér var svo kalt. Vindurinn í skjólinu kom svo sannarlega aftan að mér… pic.twitter.com/jREanC9sN0
— Arnar Laufdal (@AddiLauf) May 21, 2022
Athugasemdir