Fotbolti.net
24.05.26 - 23:58
Ívan Guðjón Baldursson

3. deild: Sjálfsmark réði úrslitum eftir dramatískar lokamínútur

3. deild: Sjálfsmark réði úrslitum eftir dramatískar lokamínútur
Canon

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

KF 1 - 2 Víðir
0-1 Nadir Simon Moukhliss ('3)
1-1 Marinó Snær Birgisson ('90)
1-2 Hjörvar Már Aðalsteinsson, sjálfsmark ('90)
Það fór einn leikur fram í 3. deildinni í dag þegar KF tók á móti Víði frá Garði og náði gestirnir forystunni snemma leiks.

Nadir Moukhliss skoraði á þriðju mínútu og héldu Víðismenn forystunni allt þar til á lokamínútunum, þegar Marinó Snær Birgisson jafnaði metin fyrir heimamenn.

Leikmenn KF héldu að þeir væru að bjarga stigi þarna en svo var ekki því gestirnir úr Garði náðu að pota inn sigurmarki. Hjörvar Már Aðalsteinsson var þar á ferðinni en hann er leikmaður KF og skoraði sjálfsmark í uppbótartíma.

Svekkjandi tap fyrir KF sem er með tvö stig eftir fjórar umferðir. Víðir er með sjö stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.