Arteta: Þetta er allt konunni minni að þakka

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Mikel Arteta þjálfari Arsenal er að springa úr stolti eftir að hafa fært stuðningsmönnum félagsins fyrsta Englandsmeistaratitilinn síðan 2004.
Arteta er orðin goðsögn hjá félaginu og hefur fengið mikið hrós úr öllum áttum, en hann vill meina að árangur liðsins sé eiginkonunni að þakka.
„Hún verður að skilja að án hennar þá hefði ekkert af þessu gerst. Ég hefði ekki unnið Englandsmeistaratitilinn með Arsenal án hennar," segir Arteta, sem er giftur leikkonunni og módelinu Lorena Bernal sem vann fegurðarsamkeppnina Ungfrú Spánn árið 1999, þegar hún var ekki nema 17 ára gömul.
Þau kynntust í desember 2002 þegar þau komu bæði heim til heimabæjarins San Sebastián í jólafrí. Þau giftust 2010 og eiga þrjá syni saman.
„Hún er ástæðan fyrir því að ég get haldið yfirvegun við erfiðar og stressandi aðstæður. Hún er ástæðan fyrir sjálfstraustinu mínu og að ég geti starfað á því orkustigi sem þarf til að ná svona árangri."

TENGT EFNI
Arteta var úti í garði að grilla þegar Arsenal varð meistari
Mikel Arteta thrown in the air by the Arsenal players during celebrations
by
u/hikingbeginner in
soccer