Fotbolti.net
24.05.26 - 10:51
Elvar Geir Magnússon

Benoný Breki byrjar á bekknum á Wembley

Benoný Breki Andrésson byrjar á bekknum.

Benoný Breki Andrésson byrjar á bekknum.

Canon

Mynd: Stockport County

Stockport og Bolton mætast í úrslitum umspilsins um sæti í Championship deildinni á Wembley klukkan 12:00.

Sóknarmaðurinn Benoný Breki Andrésson er leikmaður Stockport en hann hefur verið mjög óheppinn með meiðsli á tímabilinu. Hann kom til baka í tæka tíð og kom við sögu undir lokin og skoraði í lokaumferð deildarinnar.

Byrjunarliðin hafa verið tilkynnt fyrir leik dagsins og Benoný Breki byrjar meðal varamanna.
Benoný stýrði fögnuðinum eftir magnað afrek
TENGT EFNI

Benoný stýrði fögnuðinum eftir magnað afrek

Hann kom við sögu undir lokin í báðum leikjunum gegn Stevenage í undanúrslitum umspilsins sem Stockport vann 3-0 samanlagt.

Liðið mætir Bolton sem lagði Bradford samanlagt 2-0. Þetta er í annað sinn á þremur árum sem Bolton fer í úrslit umspilsins.


Benoný Breki byrjar á bekknum á Wembley
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.