Fotbolti.net
24.05.26 - 20:41
Ívan Guðjón Baldursson

Bowen neitaði að gefa skýr svör: Vill sjá West Ham komast upp

Bowen neitaði að gefa skýr svör: Vill sjá West Ham komast upp
Canon

Mynd: EPA

Jarrod Bowen fyrirliði West Ham United gæti verið á förum frá félaginu í sumar. Hann er eftirsóttur af stórliðum úr enska boltanum og gætu Hamrarnir neyðst til að selja hann.
Bowen hefur verið besti leikmaður West Ham á undanförnum árum og átti hann mark og stoðsendingu í 3-0 sigri gegn Leeds í lokaumferð úrvalsdeildartímabilsins, en það dugði ekki til að bjarga liðinu frá falli.

Bowen var spurður hvað framtíðin ber í skauti sér og segist hann vilja sjá West Ham fara beint aftur upp í deild þeirra bestu.

„Ég hef verið hérna í sex og hálft ár og ég er ennþá samningsbundinn félaginu," sagði Bowen, en samningurinn rennur út eftir fjögur ár.

„Það verða orðrómar og alskonar umræða í sumar en þegar allt kemur til alls þá sé ég þetta félag komast aftur upp í úrvalsdeildina. Þetta er ömurleg stund fyrir okkur en það er undir okkur komið að snúa þessu við. Ég hef upplifað æðislegar stundir með West Ham en þetta er mjög erfitt. Það er erfitt að kyngja þessu.

„Þegar kemur að framtíðinni þá getur maður aldrei vitað hvað gerist. Fyrir mitt leyti vil ég sjá þetta félag komast aftur upp í úrvalsdeildina."


Stórveldi tilbúin að kaupa Bowen
TENGT EFNI

Stórveldi tilbúin að kaupa Bowen




Declan Rice reacts to the news of West Ham being relegated
by
u/hikingbeginner in
soccer
Bowen neitaði að gefa skýr svör: Vill sjá West Ham komast upp
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.