Fotbolti.net
24.05.26 - 23:11
Ívan Guðjón Baldursson

De Zerbi: 10 til 12 leikmenn nógu góðir til að vera áfram

De Zerbi: 10 til 12 leikmenn nógu góðir til að vera áfram
Canon

Mynd: EPA

Gary Neville, fótboltasérfræðingur á Sky Sports, hraunaði yfir Tottenham í útsendingu frá lokaumferð enska úrvalsdeildartímabilsins í dag.
Hann talaði um vandræðalega ömurlegt tímabil hjá liðinu og var sammála Roberto De Zerbi þjálfara sem sagði aðeins 10 til 12 leikmenn hópsins vera nægilega góða fyrir félag af þessari stærðargráðu.

„Frá og með kvöldinu í kvöld þurfum við að skipuleggja okkur og byggja nýtt lið. Ég held ekki að við þurfum að skipta út alltof mörgum leikmönnum, við erum með 10 til 12 menn sem eru nægilega góðir til að vera áfram," sagði De Zerbi eftir lokaflautið í lokaumferðinni. Tottenham innsiglaði sæti sitt í úrvalsdeildinni, eftir að hafa lent í óvæntri fallbaráttu á tímabilinu, með 1-0 sigri gegn Everton.

„Við verðum að fylla hópinn af leikmönnum sem eru á svipuðu getustigi til að hafa raunverulega stöðubaráttu og til að geta fyllt í skörðin þegar leikmenn meiðast. Þetta félag er búið að þjást alltof mikið á tímabilinu, stuðningsmenn eiga betra skilið. Við erum ekki félag sem á að vera nálægt fallbaráttu.

„Ég hef fulla trú á því að við verðum sterkari og markmiðið mitt er að byrja næsta tímabil með draumaliðið mitt sem ég er með í hausnum."


De Zerbi var spurður hvort miðjumaðurinn Joao Palhinha verði partur af liðinu á næstu leiktíð, en hann er hjá Tottenham á lánssamningi frá FC Bayern með kaupmöguleika.

„Ég vil 100% halda honum (Palhinha) hjá félaginu, alveg eins og Conor Gallagher og Randal (Kolo Muani, á láni frá PSG)."

De Zerbi: Verðum að byggja topplið í sumar
TENGT EFNI

De Zerbi: Verðum að byggja topplið í sumar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.