Fotbolti.net
24.05.26 - 20:29
Ívan Guðjón Baldursson

De Zerbi: Verðum að byggja topplið í sumar

De Zerbi: Verðum að byggja topplið í sumar
Canon

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi þjálfari Tottenham var kátur eftir að lærlingar hans tryggðu sér áframhaldandi þátttöku í ensku úrvalsdeildinni með sigri gegn Everton í dag.
De Zerbi efaðist aldrei um að Tottenham tækist að bjarga sér frá falli og telur hann að félag af þessari stærðargráðu ætti að vera að berjast á hinum enda stöðutöflunnar.

Tottenham endaði í 17. sæti úrvalsdeildarinnar annað tímabilið í röð og var hársbreidd frá því að falla úr deildinni í fyrsta sinn frá stofnun fyrir 34 árum síðan.

„Við verðum að byggja topp, topp, topplið í sumar. Við verðum að kaupa inn topp leikmenn. Ég veit ekki hversu marga við þurfum að kaupa en við þurfum að gera það. Það er mikilvægt til að gleðja stuðningsmenn sem hafa þurft að ganga í gegnum mikið," sagði De Zerbi eftir lokaflautið gegn Everton.

„Við höfum þjáðst mjög mikið á síðustu árum. Félagið hefur beðið álitshnekki og við þurfum að bæta úr því. Stjórnin og flestir innan félagsins þrá ekkert heitar en að byrja að sigra á ný."

England: Palhinha bjargaði Tottenham - West Ham fellur með stæl
TENGT EFNI

England: Palhinha bjargaði Tottenham - West Ham fellur með stæl

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.