27.07.26 - 15:28
Elvar Geir Magnússon
Olmo hafnar afsökunarbeiðninni og segir þjálfarann ljúga

Það voru læti.

Mynd: EPA

Dani Olmo.

Mynd: EPA

Það voru læti.

Mynd: EPA
Mönnum var heldur betur heitt í hamsi eftir úrslitaleik Spánar og Argentínu á HM. Meðal þeirra sem lentu saman voru Dani Olmo, leikmaður Spánar, og Roberto Ayala, aðstoðarþjálfari Argentínu.
Ayala hefur í fyrsta sinn tjáð sig um átökin en gerði lítið úr sínum hluta. Á upptöku virðist hann kýla Olmo í hálsinn. Ayala segir að þetta hafi verið meiri hrinding en hnefahögg, hann hafi verið að bregðast við einhverju sem Olmo hafi sagt.
Þá hefur Ayala beðist afsökunar og segir að hann muni biðja Olmo sjálfan afsökunar persónulega ef leiðir þeirra liggja saman aftur.

Í viðtali við spænska dagblaðið Diari de Terrassa segist Olmo ekki hafa neinn áhuga á afsökunarbeiðni.
„Einhver sem biðst afsökunar en réttlætir högg með því að segja að hann hafi verið að bregðast við ummælum er ekki með neina eftirsjá. Hann er að ljúga því ég sagði ekkert við. Það sem raunverulega skilgreinir okkur eru ekki mistökin, heldur hugrekkið til að viðurkenna þau með auðmýkt, heiðarleika og reisn," segir Olmo.
„Þegar börnin mín, fjölskyldan mín og allir þessir stuðningsmenn horfa á leikinn vil ég að þau séu stolt af því hvernig við kepptum, hvernig við unnum og – umfram allt – af framkomu okkar; því að vegna mikilvægis fótboltans eru við leikmennirnir fyrirmyndir fyrir börn og nýjar kynslóðir, og því fylgir mikil ábyrgð."

????????????? Roberto Ayala, ayudante de Scaloni en la Selección Argentina, ha pedido perdón por este momento con Dani Olmo tras la final del Mundial:
— Madrid Sports (@MadridSports_) July 22, 2026
"Fue más un EMPUJÓN que otra cosa, no fue un puñetazo como quieren decir. Si veo a Dani le pediré DISCULPAS en persona"
"Obviamente que…

Dani Olmo.

Mynd: EPA