Úlfur hefur spilað sinn síðasta leik í sumar - „Reynum að fá framherja í hans stað''


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úlfur hefur spilað sinn síðasta leik í sumar fyrir FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var að mörgu leyti bara jafn leikur, við vorum að reyna að halda í boltann, hefðum getað gert það aðeins betur í fyrri hálfleik. Mér fannst við gera það betur í seinni hálfleik og skapa fleiri stöður en tilfinningin er að þetta var jafn leikur en hefði getað fallið með okkur undir lokin. Við fáum nokkrar góðar stöður, Arnór Borg fær skallafæri á fjær, við vorum að sleppa í gegn, Kjartan Kári kemst í góða skotstöðu og Úlfur kemst í góða stöðu. Kannski gerðum við bara nóg til að vina þennan leik, það er kannski bara mín tilfinning, á sama tíma er ég mjög sáttur við að koma hingað og mæta eina besta liði landsins og halda hreinu.''
FH hefur nú haldið hreinu í þremur leikjum í röð eftir að hafa fengið mikið af mörkum á sig í byrjun móts.
„Það er virkilega gott, við erum orðnir ansi grimmir í að verja markið okkar og getum stigið upp og pressað, getum einnig varist vel skipulagt á síðasta þriðjung og gert það agressíft. Við vitum að við getum ekki haldið öllum liðum í skefjum í 90 mínútur en ég er virkilega ánægður með vinnusemina, kraftinn og eljusemina í að verja markið og gera það vel. Jökull er búinn að standa sig frábærlega í markinu og þetta smitar út frá sér, karakterinn og viljinn er gjörsamlega til staðar og það er það sem skóp þetta stig í dag.''
Úlfur Ágúst hefur spilað sinn síðasta leik fyrir FH í sumar en hann heldur til Bandaríkjanna þar sem hann mun klára námið í desember áður en hann snýr aftur til FH.
„Við erum að reyna að fá framherja í staðinn fyrir Úlf, þetta var síðasti leikurinn hans og nú fer hann út til Bandaríkjanna og klárar námið sitt þar um jólin og er svo alfarið kominn til okkar. Við ætlum að reyna að fá framherja í hans stað og vonandi heppnast það hjá okkur og við finnum einhverja týpu sem hentar okkur í því sem að Úlfur skilur eftir sig þegar hann fer.''
Eftir erfiða byrjun á tímabilinu þar sem FH fékk aðeins tvö stig úr fyrstu níu leikjunum hefur liðið nú ekki tapað í sjö leikjum í röð.
„Þessir sjö leikir í röð, það er frábært að tapa ekki leikjum því það var alveg erfitt hjá okkur í byrjun. Leikirnir voru ekki alveg að falla með okkur, leikurinn heima gegn Fram vorum við 3-1 yfir í hálfleik, spilum fínan leik heima gegn Skaganum og fínan leik heima á móti KA, hefðum átt að uppskera eitthvað út úr þessum leikjum. útileikurinn á móti Breiðablik var mjög góður leikur en vorum klaufar að gefa víti á okkur þar undir lokin. Margar góðar frammistöður, við erum á fínu róli, sjö í röð núna en þeir hefðu alveg getað verið fleiri þar á undan og við höldum áfram að byggja á þessu.''

Úlfur hefur spilað sinn síðasta leik í sumar fyrir FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
