Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
   sun 24. maí 2026 17:24
Ívan Guðjón Baldursson
Ekki víst hvort Bruno hafi slegið stoðsendingametið
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Bruno Fernandes lék á alls oddi er Manchester United vann sannfærandi sigur á útivelli gegn Brighton í lokaumferð enska úrvalsdeildartímabilsins í dag.

Bruno átti hornspyrnu sem Patrick Dorgu stangaði í netið og fékk skráða stoðsendingu áður en hann skoraði sjálfur í 0-3 sigri.

Með stoðsendingunni úr hornspyrnunni bætti Bruno stoðsendingamet úrvalsdeildarinnar með 21 stoðsendingu, einni meira heldur en Kevin De Bruyne og Thierry Henry.

Það er þó óljóst hvort Bruno muni halda þessari stoðsendingu útaf því að það gæti átt eftir að útkljá um hvort Dorgu fær markið skráð á sig, eða hvort það skráist sem sjálfsmark hjá Bart Verbruggen markverði.

Dorgu virðist skalla boltann í slána og þaðan fer hann í Verbruggen og í netið. Það þarf að meta um hvort boltinn hafi verið á leið innfyrir línuna eftir að hafa haft viðkomu í slánni og áður en hann hæfði Verbruggen.

Sjáðu markið.

   24.05.2026 15:41
Bruno sló stoðsendingametið

Slapp
banner