Fotbolti.net
24.05.26 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson

Forsætisráðherrann vill hafa úrslitaleikinn í opinni dagskrá

Keir Starmer.

Keir Starmer.

Canon

Mynd: EPA

Sir Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands og stuðningsmaður Arsenal, kallar eftir því að TNT Sports sýni frá úrslitaleik Meistaradeildarinnar gjaldfrjálst í opinni dagskrá.
Arsenal spilar þar við ríkjandi meistara Paris Saint-Germain á Puskás Aréna í Ungverjalandi.

Starmer skrifaði opið bréf til TNT á dögunum þar sem hann biðlaði til stjórnar fyrirtækisins að sýna leikinn í opinni dagskrá. Hann skrifaði bréfið skömmu eftir að tilkynnt hafði verið um ákvörðun sjónvarpsveitunnar að hafa leikinn ekki í opinni dagskrá.

Þetta verður í fyrsta sinn frá stofnun Meistaradeildarinnar árið 1992 sem úrslitaleikur keppninnar er ekki sýndur í opinni dagskrá á Englandi.

TNT er með sjónvarpsréttinn af öllum úrslitaleikjum Evrópukeppna í ár, en ensk félagslið komust í úrslit í öllum keppnum þetta tímabilið. Eina leiðin fyrir Englendinga til að horfa á úrslitaleikina er þó að kaupa sér áskrift af TNT Sports.

„Allir þrír úrslitaleikir UEFA eru aðgengilegir fyrir svo lítið sem 4,99 pund. Fyrir þá upphæð er mánaðaráskrift í boði sem inniheldur að auki aðgang að HBO Max," sagði í yfirlýsingu frá TNT.

Aston Villa fór létt með Freiburg í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í vikunni og framundan eru úrslitaleikir í Sambandsdeildinni og Meistaradeildinni. Crystal Palace spilar við Rayo Vallecano á miðvikudagskvöldið áður en Arsenal mætir ríkjandi Evrópumeisturum PSG í lokaleik tímabilsins næsta laugardag.

Forsætisráðherra Bretlands: Loksins komnir þar sem við eigum heima
TENGT EFNI

Forsætisráðherra Bretlands: Loksins komnir þar sem við eigum heima

Forsætisráðherrann vill hafa úrslitaleikinn í opinni dagskrá
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.