Fotbolti.net
24.05.26 - 17:56
Ívan Guðjón Baldursson

Fyrstir til að fá hvorki víti né rautt á sig

Fyrstir til að fá hvorki víti né rautt á sig
Canon

Mynd: EPA

Arsenal vann langþráðan Englandsmeistaratitil undir stjórn Mikel Arteta og varð um leið fyrsta liðið í sögu úrvalsdeildarinnar til að fara í gegnum heilt tímabil án þess að fá rautt spjald eða víti dæmt á sig.
Þetta er mögnuð umbreyting frá síðustu leiktíð þegar Arsenal lenti oft í vandræðum útaf brottrekstrum og endaði sem grófasta lið deildarinnar, með sex rauð spjöld. Liðið gaf auk þess þrjár vítaspyrnur í fyrra.

Arteta hefur lagt mikla áherslu á prúðmennsku og að virða lög og reglur leiksins eins og má sjá í föstum leikatriðum. Þar virðast leikmenn Arsenal vera orðnir meistarar í því að trufla andstæðinga sína án þess að brjóta á þeim og hafa uppskorið mikið magn marka úr föstum leikatriðum, sérstaklega hornspyrnum.

Síðast þegar Arsenal vann úrvalsdeildina var það fyrsta liðið til að fara í gegnum heild deildartímabil án þess að tapa leik.

Þess má þó geta að leikmenn Arsenal hafa verið stálheppnir að fá ekki rauð spjöld á lokakafla úrvalsdeildartímabilsins. Fyrst Gabriel Magalhaes í 2-1 tapi gegn Manchester City og svo Kai Havertz í naumum sigri gegn Burnley.

Arteta var úti í garði að grilla þegar Arsenal varð meistari
TENGT EFNI

Arteta var úti í garði að grilla þegar Arsenal varð meistari

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.