Fotbolti.net
24.05.26 - 15:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Hálfleikur: Tottenham í góðum málum - Sunderland í Evrópusæti

Hálfleikur: Tottenham í góðum málum - Sunderland í Evrópusæti
Canon

Mynd: EPA

Það er kominn hálfleikur í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar og það eru áhugaverðir hlutir að gerast.

Eins og staðan er núna er útlit fyrir að West Ham sé að falla. Tottenham þarf aðeins jafntefli gegn Everton en Joao Palhinha kom Tottenham yfir þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma.
Það er enn markalaust í leik West Ham og Leeds og West Ham er því fjórum stigum á eftir Tottenham.

Sunderland er stokkið upp um þrjú sæti og er komið í 7. sæti sem gefur þátttökurétt í Evrópudeildinni. Liðið er yfir á móti Chelsea þar sem Trai Hume skoraði. Brighton, sem er að tapa gegn Man Utd, fellur niður í 8. sæti sem gefur Sambandsdeildarsæti.

Englandsmeistarar Arsenal eru yfir á móti Palace og þá er Man City yfir á móti Aston Villa. Liverpool og Brentford eru að gera markalaust jafntefli en með sigri fer Liverpool upp fyrir Aston Villa og þá fær enska deildin sex Meistaradeildarsæti.

Þá er Wolves að vinna botnslaginn gegn Burnley og er komið upp úr botnsætinu í fyrsta sinn í 273 daga.

Hálfleiksstaðan
Brighton 0 - 2 Manchester Utd
0-1 Patrick Dorgu ('33 )
0-2 Bryan Mbeumo ('44 )

Burnley 0 - 1 Wolves
0-1 Adam Armstrong ('5 , víti)

West Ham 0 - 0 Leeds

Fulham 1 - 0 Newcastle
1-0 Issa Diop ('20 )

Nott. Forest 1 - 0 Bournemouth
1-0 Morgan Gibbs-White ('34 )

Liverpool 0 - 0 Brentford

Manchester City 1 - 0 Aston Villa
1-0 Antoine Semenyo ('23 )

Tottenham 1 - 0 Everton
1-0 Joao Palhinha ('43 )

Sunderland 1 - 0 Chelsea
1-0 Trai Hume ('25 )

Crystal Palace 0 - 1 Arsenal
0-1 Gabriel Jesus ('42 )
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.