Ítalía í dag - Barist um Meistaradeild og fall

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalska deildartímabilinu lýkur í kvöld þar sem sex lið eru enn í harðri baráttu um mikilvæg sæti í deildinni.
AC Milan, AS Roma, Como og Juventus eru að berjast um síðustu tvö Meistaradeildarsætin en hin tvö liðin fara í Evrópudeildina. Eins og staðan er núna eru Milan og Roma með tveggja stiga forskot.
Milan tekur á móti Cagliari á meðan Roma heimsækir fallið lið Verona, á sama tíma og Juventus spilar nágrannaslag við Torino og Como heimsækir fallbaráttulið Cremonese.
Cremonese er eini andstæðingurinn sem er að keppa upp á eitthvað, að undanskildu liði Torino sem þráir eflaust ekkert heitar en að enda tímabilið á því að eyðileggja möguleika nágranna sinna.
Cremonese er í harðri fallbaráttu við Lecce og þarf helst á sigri að halda en gæti nægt jafntefli til að eiga möguleika á að forðast fall. Lecce er einu stigi fyrir ofan og tekur á móti Genoa í mögulegum Íslendingaslag.
Þórir Jóhann Helgason hefur aðeins komið við sögu í fjórum leikjum á árinu með Lecce, heima- og útileikjum gegn stórveldum Juventus og Roma. Mikael Egill Ellertsson er fastamaður í byrjunarliði Genoa.
Ef tvö lið enda jöfn á stigum þá eru það innbyrðisviðureignir sem telja. Þar hefur Cremonese yfirhöndina í fallbaráttunni þrátt fyrir að vera stigi á eftir en í Meistaradeildarbaráttunni er Milan best sett í innbyrðisviðureignunum.
Milan hafði betur í innbyrðisviðureignum gegn Roma og Como en gerði jafntefli við Juventus. Como hafði betur gegn Juve og gerði jafntefli við Roma á meðan Juve hafði betur gegn Roma.
Leikir dagsins
13:00 Parma - Sassuolo
16:00 Napoli - Udinese
18:45 Cremonese - Como
18:45 Verona - Roma
18:45 Lecce - Genoa
18:45 Milan - Cagliari
18:45 Torino - Juventus

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Juventus | 2 | +5 | 6 |
| 1 | Inter | 38 | +54 | 87 |
| 2 | Napoli | 38 | +22 | 76 |
| 2 | Inter | 2 | +5 | 6 |
| 3 | Bologna | 2 | +1 | 4 |
| 3 | Roma | 38 | +28 | 73 |
| 4 | Como | 38 | +36 | 71 |
| 4 | Milan | 1 | +3 | 3 |
| 5 | Napoli | 1 | +2 | 3 |
| 5 | Milan | 38 | +18 | 70 |
| 6 | Juventus | 38 | +27 | 69 |
| 6 | Chievo | 1 | +1 | 3 |
| 7 | Atalanta | 38 | +15 | 59 |
| 7 | Sampdoria | 1 | +1 | 3 |
| 8 | Bologna | 38 | +3 | 56 |
| 8 | Roma | 2 | -1 | 3 |
| 9 | Torino | 1 | 0 | 1 |
| 9 | Lazio | 38 | +1 | 54 |
| 10 | Udinese | 38 | -3 | 50 |
| 10 | Lazio | 1 | 0 | 1 |
| 11 | Sassuolo | 38 | -4 | 49 |
| 11 | Sassuolo | 1 | 0 | 1 |
| 12 | Parma | 38 | -18 | 45 |
| 12 | Spal | 1 | 0 | 1 |
| 13 | Torino | 38 | -19 | 45 |
| 13 | Genoa | 2 | -2 | 1 |
| 14 | Cagliari | 38 | -13 | 43 |
| 14 | Udinese | 1 | -1 | 0 |
| 15 | Fiorentina | 38 | -9 | 42 |
| 15 | Atalanta | 1 | -1 | 0 |
| 16 | Genoa | 38 | -10 | 41 |
| 16 | Benevento | 2 | -2 | 0 |
| 17 | Verona | 1 | -2 | 0 |
| 17 | Lecce | 38 | -22 | 38 |
| 18 | Cagliari | 1 | -3 | 0 |
| 18 | Cremonese | 38 | -25 | 34 |
| 19 | Crotone | 1 | -3 | 0 |
| 19 | Verona | 38 | -36 | 21 |
| 20 | Pisa | 38 | -45 | 18 |
| 20 | Fiorentina | 1 | -3 | 0 |