Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
   sun 24. maí 2026 19:38
Ívan Guðjón Baldursson
Júlíus og Hrannar töpuðu gegn toppliðinu
Mynd: Kristiansund
Júlíus Mar Júlíusson var í byrjunarliði Kristiansund sem tók á móti Noregsmeisturum Viking í efstu deild í dag.

Gestirnir í liði Viking unnu 1-2 á meðan Júlíus Mar lék allan leikinn. Hrannar Snær Magnússon fékk síðasta hálftímann í liði heimamanna og þá var Hilmir Rafn Mikaelsson ónotaður varamaður í meistaraliði Viking.

Viking trónir á toppi norsku deildarinnar með 27 stig eftir 10 umferðir. Kristiansund er með 11 stig.

Fyrr í dag gerðu liðsfélagar Olivers Stefánssonar í Tychy jafntefli í lokaumferð pólsku B-deildarinnar. Þeir eru fallnir niður í þriðju efstu deild.

Kristiansund 1 - 2 Viking

Tychy 3 - 3 Rzeszow

Slapp
banner
banner