Fotbolti.net
24.05.26 - 23:31
Ívan Guðjón Baldursson

McFarlane: Tókst ekki að bjarga tímabilinu

McFarlane: Tókst ekki að bjarga tímabilinu
Canon

Mynd: EPA

Calum McFarlane var niðurlútur eftir tap Chelsea á útivelli gegn Sunderland í lokaumferð enska deildartímabilsins.
Chelsea var í harðri Evrópubaráttu og hefði nægt jafntefli til að næla sér í Sambandsdeildarsæti á meðan sigur hefði komið liðinu í Evrópudeildina.

Bráðabirgðaþjálfarinn McFarlane segir alla í liðinu vera sársvekkta eftir tapið, sem litaðist af rauðu spjaldi sem Wesley Fofana vann sér inn í síðari hálfleik með tveimur gulum spjöldum.

„Við vildum koma hingað og bjarga vonbrigðatímabili með Evrópudeildarsæti, en það tókst ekki. Við spiluðum ekki nægilega vel og skilaboðin til stuðningsmanna eru einföld: við erum alveg jafn svekktir og þið. Stuðningsfólkið okkar hefur verið frábært á tímabilinu og við brugðumst þeim í dag. Þau áttu skilið betri frammistöðu frá okkur," sagði McFarlane eftir tapið.

„Ég sé ekkert að hugarfari leikmanna, að mínu mati hefur blanda af óheppni og reynsluleysi eyðilagt tímabilið fyrir okkur. Ég naut tíma míns við stjórnvölinn hérna og ég hlakka mikið til að sjá hvað Xabi Alonso hefur fram að færa."

Xabi Alonso: Mikil gæði í þessum hóp
TENGT EFNI

Xabi Alonso: Mikil gæði í þessum hóp

McFarlane: Tókst ekki að bjarga tímabilinu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.