Fotbolti.net
24.05.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Mourinho skoðaði Olise er Bayern tryggði bikarinn

Mourinho skoðaði Olise er Bayern tryggði bikarinn
Canon

Mynd: EPA

Portúgalinn reynslumikli José Mourinho er að öllum líkindum að taka við Real Madrid í sumar og hefur stórveldið verið orðað við ýmsa öfluga leikmenn síðustu vikur.
Mourinho var staddur á Ólympíuleikvanginum í Berlín þegar FC Bayern spilaði úrslitaleik bikarsins við Stuttgart í gær. Talið er að hann hafi verið að fylgjast með franska kantmanninum Michael Olise.

Olise átti góðan leik. Hann lagði upp og fiskaði vítaspyrnu sem Harry Kane skoraði úr í 3-0 sigri.

Uli Höness, heiðursforseti Bayern, var spurður hvað honum fyndist um að Mourinho væri með eitt auga á Olise.

„Mourinho getur verið með fimm augu á Olise ef hann vill, hann mun samt ekki fá hann," svaraði Hoeness. Olise er ekki til sölu fyrir neina upphæð.

Mourinho vill fá Bastoni til Real Madrid
TENGT EFNI

Mourinho vill fá Bastoni til Real Madrid

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.