Spænskir fjölmiðlar greina frá því að Real Madrid gæti reynt við ítalska miðvörðinn Alessandro Bastoni þar sem það þykir ljóst að Barcelona getur ekki leyft sér að festa kaup á honum.
Ítalíumeistarar Inter vilja fá 70 til 80 milljónir evra til að selja Bastoni og hafa útilokað að láta hann frá sér með neinum afslætti. Börsungar voru sagðir vongóðir um að geta fengið hann fyrir 40 til 50 milljónir, en svo er ekki.
05.05.2026 09:45
Forsetinn staðfestir áhuga Barcelona á Bastoni
Bastoni verður því líklegast áfram hjá Inter nema að Real Madrid kjósi að reyna við hann. José Mourinho er að taka við félaginu í annað sinn á ferlinum og hefur hann miklar mætur á ítalska landsliðsmiðverðinum.
Mourinho telur Real Madrid þurfa að styrkja varnarlínuna sína í sumar og hefur félagið verið orðað við menn á borð við Luka Vuskovic, Nico Schlotterbeck og Josko Gvardiol undanfarnar vikur.
Samkvæmt fjölmiðlum á Spáni er Bastoni efstur á óskalista Mourinho fyrir varnarlínu Real Madrid enda hefur hann verið meðal allra bestu örvfættra miðvarða heimsfótboltans á síðustu árum.
Eder Militao og Dean Huijsen eru taldir vera bestu miðverðir í leikmannahópi Real Madrid en þar má einnig finna hinn mistæka Raúl Asencio og tvær þýskumælandi kempur sem renna út á samningi í sumar - hina 33 ára gömlu David Alaba og Antonio Rüdiger.
21.04.2026 08:30
„Hringið í okkur ef þið hafið áhuga"




