Fotbolti.net
24.05.26 - 22:18
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Myndband: Getafe og Osasuna fögnuðu saman að leikslokum

Myndband: Getafe og Osasuna fögnuðu saman að leikslokum
Canon

Mynd: EPA

Það var mikil dramatík í lokaumferð spænsku deildarinnar í gærkvöldi þar sem mikið af liðum gat ennþá fallið og nokkur voru enn í baráttu um Evrópusæti.
Getafe og Osasuna áttust við og höfðu heimamenn í Madríd betur með einu marki gegn engu. Þeir tryggðu sér þannig síðasta Evrópusæti deildarinnar, sem veitir þátttökurétt í forkeppni Sambandsdeildarinnar eftir sumarfrí.

Leikmenn og stuðningsmenn Getafe fögnuðu dátt á meðan andstæðingarnir í tapliði Osasuna hröðuðu sér að hliðarlínunni til að fylgjast með úrslitafréttum frá öðrum leikjum í fallbaráttunni.

Þegar þeir sáu að viðureign Girona og Elche lauk með 1-1 jafntefli vissu þeir að sæti þeirra í La Liga væri hólpið og tóku að fagna ásamt heimamönnum í Getafe.


Getafe players were celebrating getting into Europe...but were swiftly joined in a huddle by Osasuna players, who celebrated along with them on occasion of avoiding relegation
by
u/ChiefLeef22 in
soccer
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.