Fotbolti.net
24.05.26 - 21:15
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Spánn: Slátruðu Atlético í úrslitaleik um þriðja sætið

Spánn: Slátruðu Atlético í úrslitaleik um þriðja sætið
Canon

Mynd: EPA

Villarreal 5 - 1 Atletico Madrid
1-0 Dani Parejo ('30 , víti)
2-0 Ayoze Perez ('34 )
3-0 Georges Mikautadze ('40 )
3-1 Marc Pubill ('43 )
4-1 Pape Gueye ('45 )
5-1 Ayoze Perez ('54 )
Villarreal tók á móti Atlético Madrid í lokaleik spænska deildartímabilsins og skópu heimamenn stórsigur.

Dani Parejo byrjaði markaregnið á því að skora úr vítaspyrnu á 30. mínútu og litu fjögur mörk til viðbótar dagsins ljós á næsta stundarfjórðungi.

Ayoze Pérez og Georges Mikautadze komu heimamönnum í þriggja marka forystu áður en Marc Pubill minnkaði muninn.

Skömmu síðar jók Pape Gueye aftur forystuna svo staðan var 4-1 í leikhlé. Ayoze Pérez skoraði svo aftur í upphafi síðari hálfleiks og þar við sat, lokatölur 5-1. Pérez átti líka stoðsendingu í leiknum og lagði Nicolas Pépé, næstdýrasti leikmaður í sögu Arsenal, tvö mörk upp.

Villarreal endar í þriðja sæti La Liga með 72 stig, þremur stigum meira heldur en Atlético. Liðin mættust í úrslitaleik um þriðja sætið en voru bæði löngu búin að tryggja sér Meistaradeildarsæti fyrir næstu leiktíð.
Spánn: Slátruðu Atlético í úrslitaleik um þriðja sætið
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.