Fotbolti.net
24.05.26 - 20:20
Ívan Guðjón Baldursson

Vill halda Baleba en neitaði að tjá sig um Milner

Vill halda Baleba en neitaði að tjá sig um Milner
Canon

Mynd: EPA

Fabian Hürzeler þjálfari Brighton svaraði spurningum eftir tap á heimavelli gegn Manchcester United í lokaumferð enska úrvalsdeildartímabilsins.
Hann var ekki ánægður með frammistöðu sinna manna í þriggja marka tapi en sagði að það mætti ekki skyggja á gott tímabil. Brighton endar í áttunda sæti úrvalsdeildarinnar og tryggir sér þannig þátttöku í forkeppni Sambandsdeildarinnar eftir sumarfrí.

Hürzeler var spurður út í framtíð tveggja leikmanna liðsins, Carlos Baleba og James Milner. Baleba hefur verið orðaður sterklega við Manchester United á meðan Milner er 40 ára gamall og verður samningslaus í sumar.

Baleba byrjaði á bekknum í tapinu gegn Man Utd og kom inn af bekknum í seinni hálfleik.

„Það er 100% að við viljum halda Carlos hérna en við verðum að bíða og sjá með James. Carlos var ekki í byrjunarliðinu útaf þreytu, engu öðru," sagði Hürzeler.

Hurzeler gerir nýjan og lengri samning við Brighton
TENGT EFNI

Hurzeler gerir nýjan og lengri samning við Brighton

Vill halda Baleba en neitaði að tjá sig um Milner
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.