Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
   sun 24. maí 2026 19:11
Ívan Guðjón Baldursson
West Ham bestir til að falla síðan þeir féllu sjálfir 2003
Mynd: EPA
West Ham United vann 3-0 á heimavelli gegn Leeds United í lokaumferð enska úrvalsdeildartímabilsins en það dugði ekki til að bjarga liðinu frá falli.

Hamrarnir enda tímabilið með 39 stig úr 38 umferðum sem er ekki nóg til að bjarga sér frá falli í fyrsta sinn síðan 2003.

Ekkert lið hefur fallið með meira en 39 stig síðan West Ham féll um deild árið 2003, með 42 stig.

Síðan þá er Birmingham City eina liðið til að falla með 39 stig árið 2011, en með verri markatölu heldur en West Ham. Annars féll Sheffield United með 38 stig árið 2007 og Newcastle United með 37 stig 2016.


Slapp
banner