Fotbolti.net
24.06.21 - 21:44
Baldvin Már Borgarsson

Lalli Gre hefði frekar viljað mæta KR eða Val: Saddari lið

Auglýsing
Lalli hér fyrir miðju.

Lalli hér fyrir miðju.

Canon

Mynd: Úlfarnir

Mjólkurbikarinn
Lárus Grétarsson, þjálfari Úlfanna var brattur eftir leik sinna manna gegn Fylki í Mjólkurbikarnum fyrr í kvöld.

Fylkismenn völtuðu yfir Úlfana, 7-0 og tryggðu sér miða í hattinn fyrir 16 liða úrslit bikarsins.

Fylkir spilar í Pepsi Max deildinni en Úlfarnir í 4. deildinni, þeirri neðstu í deildarkeppni á Íslandi.
„Þetta var ekki lið í 4. deildinni sem við vorum að spila á móti, við vissum alveg hvað við vorum að fara út í og hefðum kannski getað komið í veg fyrir nokkur mörk.''

„Við áttum tvo sénsa í seinni hálfleik, ég er mjög sáttur með fyrstu 25 í seinni en þetta er bara munurinn, þeir hreyfa boltann hratt, skipta boltanum á milli og það er erfitt að elta þá.''


Hefðu hinir íslensku Úlfar viljað mæta einhverju öðru liði en Fylki í dag?

„Ég held að af þessum Pepsi Max liðum hafi verið erfitt að mæta Fylki, því það er ungt lið, hleypur mikið og færir boltann hratt á milli. Kannski hefði ég bara viljað mæta KR eða Val sem eru saddari lið.''

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en þar ræðir Lalli betur um leikinn, 4. deildina og framhaldið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.