Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 13:21
Innkastið
„Einn stór skrípaleikur sem hann setti í gang“
Höskuldur fékk verðskuldað rautt spjald.
Höskuldur fékk verðskuldað rautt spjald.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Þór Stefánsson dómari.
Arnar Þór Stefánsson dómari.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það sauð upp úr í lok leiks Breiðabliks og Fram í Bestu deildinni í gær og Arnar Þór Stefánsson dómari lyfti upp tveimur rauðum spjöldum; rak Höskuld Gunnlaugsson fyrirliða Breiðabliks og Kyle McLagan varnarmann Fram af velli.

Breiðablik jafnaði úr umdeildri vítaspyrnu í uppbótartíma og Höskuldur missti stjórn á sér þegar hann reyndi að handsama boltann til að hefja leik sem fyrsta að nýju.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  1 Fram

„Við fáum Höskuld æstan í að ná í boltann, Kennie Chopart er í hans vegi og hann grýtir honum í jörðina. Viktor Freyr (markvörður Fram) heldur á boltanum og það má eiginlega segja að Höskuldur fari á hestbak á honum við það að reyna að ná boltanum af honum," segir Sæbjörn Steinke í Innkastinu þar sem fréttamenn Fótbolta.net gerðu umferðina upp.

„Við hverju bjóst Höskuldur, þú gerir þetta ekki. Þetta er eitt verðskuldaðasta rauða spjald sem við höfum séð í sumar."

„Þetta var bara 'Linebacker' tækling hjá Höskuldi. Þetta var einn stór skrípaleikur sem hann setti í gang. Hann er góður leiðtogi en fellur þarna á því prófi að vera rólegur og góður leiðtogi," segir Haraldur Örn Haraldsson.

Elvar Geir Magnússon telur að dómarinn hafi hinsvegar rekið rangan Framara af velli.

„Kyle McLagan fýkur líka út af, fer í Höskuld og ýtir honum í hliðarnetið. Af Frömurunum átti frekar Magnús Þórðarson að fá rautt spjald. Hann tekur um hálsinn á Valgeiri. Fyrst Arnar Þór Stefánsson (dómari) var að velja einn úr hvoru liði til að reka út af eftir lætin þá getur Magnús prísað sig sælan yfir því að hafa ekki verið sendur í sturtu," segir Elvar.

Höskuldur verður í banni þegar Breiðablik heimsækir Stjörnuna á föstudagskvöld. McLagan verður í banni þegar Fram tekur á móti ÍBV á sunnudaginn.
Innkastið - Stuðningsmenn KR bauluðu á Hlíðarenda
Athugasemdir
banner