Fotbolti.net
23.07.26 - 21:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sambandsdeildin: Tryggvi Hrafn skoraði sigurmark Valsmanna

Sambandsdeildin: Tryggvi Hrafn skoraði sigurmark Valsmanna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur 1 - 0 Zrinjski Mostar
1-0 Tryggvi Hrafn Haraldsson ('64 )
Lestu um leikinn
Valur fékk Zrinjski Mostar frá Bosníu og Hersegóvínu í heimsókn í fyrri leik liðanna í 2. umferð Sambandsdeildarinnar í kvöld.

Gestirnir komu boltanum í netið á 27. mínútu en markið dæmt af. Stuttu síðar varði Frederik Schram frábærlega eftir skalla að marki.

Valsmenn náðu forystunni eftir rúmlega klukkutíma leik þegar Tryggvi Hrafn Haraldsson batt endahnútinn á skyndisókn með góðu skoti.

Gestirnir fengu úrvalsfæri stuttu síðar en Frederik Schram varði aftur vel. Hann var aftur á ferðinni þegar Mario Cuic átti skot fyrir utan teiginn þegar skammt var til loka leiks en Frederik varði í horn.

Nær komust gestirnir ekki og Valur vann sterkan og kærkominn sigur. Seinni leikur liðanna fer fram í Bosníu og Hersegóvínu á fimmtudaginn eftir viku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.