Fyrsti markaskorari Vestra í Evrópukeppni - „Þetta var ótrúleg tilfinning"


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lengjudeildarlið Vestra mætti RFS frá Lettlandi í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar fyrr í dag. Leikurinn endaði 4-1 fyrir heimamönnum.
Þórður Gunnar Hafþórsson leikmaður Vestra skoraði fyrsta Evrópumark í sögu félagsins á 64 mínútu leiksins. Fótbolti.net ræddi við Þórð Gunnar eftir leikinn.
„Okkur leið vel komandi inn í þennan leik, ætluðum að reyna að halda meira í boltann og skapa meira en í síðasta einvígi. Við vissum að þeir væru góðir á boltann og við þyrftum að verjast vel og vera þéttir á tímabili í leiknum. Þeir nýta þær stöður sem þeir fá mjög vel og refsa okkur þegar við vorum ekki á tánum. Baráttan í strákunum var til fyrirmyndar í dag og það er bara hálfleikur í þessu, við verðum að vera brattir fyrir seinni leikinn". Sagði Þórður Gunnar eftir leik.
Þórður skoraði fyrsta Evrópumark í sögu Vestra, hann tók okkur síðan aðeins í gegnum markið og tilfinninguna.
„Edson kemur boltanum á fjær þar sem Albin skallar hann í slánna, þaðan dettur boltinn svo fyrir mig og ég skalla hann inn, en þetta var ótrúleg tilfinning og gríðarlega mikill heiður að skora fyrsta Evrópumark uppeldisklúbbsins".
Það hefur verið mikið álag á liði Vestra undanfarnar vikur, liðið hefur spilað 5 leiki á síðustu 15 dögum og farið í löng ferðalög til að mynda til Aserbaídsjan.
„Það er alveg eðlilega þreyta í okkur öllum, það er ekki hægt að neita því. Erum búnir að vera í mjög stífu prógrammi síðustu vikur með mikið af ferðalögum inn í. Ég finn alveg fyrir þreytu en við fáum loksins heila viku núna á milli leikja og ég býst við enn þá meiri orku frá okkur á þróttaravellinum eftir viku".
Seinni leikurinn í einvíginu fer fram eftir viku á Avis-vellinum í Laugardal, hvernig leggst sá leikur í þig og liðið?
„Gríðarlega spennandi, ætlum okkur að keyra á þá í næsta leik og reyna að sækja góð úrslit".



