24.08.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
3. deild: Mikil spenna á toppnum - Árbær niður um deild

Víðir er á toppnum

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Árbæingar eru fallnir niður í 4. deild

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víðir er á toppnum

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Árbær er fallinn niður í 4. deild karla, en það varð ljóst eftir leiki 19. umferðar 3. deildarinnar í gær.
Árbær tapaði 4-3 fyrir Ými í fjörugum leik. Tvenna Eyþórs Ólafssonar og mark frá Andi Andra Morina dugðu ekki gegn sprækum Kópavogsmönnum sem skoruðu sigurmarkið undir lokin.
Tapið staðfesti fall Árbæjar en liðið er á botninum með aðeins átta stig.
Spennan á toppnum er hins vegar rafmögnuð. Víðir vann Hött, 3-0, og er á toppnum með 42 stig. Liðið er með fjögurra stiga forskot þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir.
KH og Tindastóll eru bæði með 38 stig í öðru og þriðja sæti en Reynir er í því fjórða með 36 stig. Öll þrjú eiga enn möguleika á sæti í 2. deildinni.
Reynir tapaði 4-1 fyrir Sindra á meðan Tindastóll vann Augnablik, 2-0, og fór upp fyrir Reynismenn. KH komst einnig upp fyrir Reyni með 4-1 sigri á KV.
Það stefnir því í æsispennandi lokasprett í baráttunni um sæti í 2. deildinni.
Árbær 3 - 4 Ýmir
1-0 Eyþór Ólafsson ('3 )
1-1 Breki Ottósson ('20 )
2-1 Andi Andri Morina ('26 )
2-2 Alexander Rúnar Róbertsson ('30 , sjálfsmark)
2-3 Breki Ottósson ('55 )
3-3 Eyþór Ólafsson ('79 )
3-4 Óliver Úlfar Helgason ('90 )
Sindri 4 - 1 Reynir S.
1-0 Abdul Bangura ('13 )
1-1 Max William Leitch ('40 )
2-1 Þórður Örn Gunnarsson ('61 )
3-1 Jóhann Frans Ólason ('70 )
4-1 Jóhannes Adolf Gunnsteinsson ('83 )
Augnablik 0 - 2 Tindastóll
0-1 Benjamín Jóhannes Gunnlaugarson ('76 )
0-2 Benjamín Jóhannes Gunnlaugarson ('78 )
Víðir 3 - 0 Höttur
1-0 Kristófer Snær Jóhannsson ('50 )
2-0 Marc Mcausland ('62 )
3-0 Edon Osmani ('63 )
KH 4 - 1 KV
0-1 Tristan Alex Tryggvason ('14 )
1-1 Sigfús Kjalar Árnason ('18 )
2-1 Haukur Ásberg Hilmarsson ('72 )
3-1 Jón Örn Ingólfsson ('82 )
4-1 Eggert Örnuson Dagsson ('84 )
KÁ 2 - 3 KF
0-1 Jhoel Adrian Sarraude ('46 )
1-1 Kristján Ólafsson ('53 )
1-2 Thomas Lamaille ('82 )
1-3 Thomas Lamaille ('88 )

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víðir | 19 | +31 | 42 |
| 2 | KH | 19 | +31 | 38 |
| 3 | Tindastóll | 19 | +15 | 38 |
| 4 | Reynir S. | 19 | +16 | 36 |
| 5 | KV | 19 | -1 | 29 |
| 6 | KF | 19 | -4 | 26 |
| 7 | Sindri | 19 | -8 | 23 |
| 8 | Höttur | 19 | -7 | 22 |
| 9 | Augnablik | 19 | -7 | 21 |
| 10 | Ýmir | 19 | -14 | 19 |
| 11 | KÁ | 19 | -25 | 19 |
| 12 | Árbær | 19 | -27 | 8 |