24.08.26 - 00:05
Brynjar Ingi Erluson
Íþróttastjóri PSG vildi lítið segja um framtíð Barcola og Mbaye

Fer Bradley Barcola til Liverpool?

Mynd: EPA

Ibrahim Mbaye hefur einnig verið orðaður við Liverpool

Mynd: EPA

Fer Bradley Barcola til Liverpool?

Mynd: EPA
Luis Campos, yfirmaður íþróttamála hjá Paris Saint-Germain, var fámáll þegar hann var spurður út í framtíð Bradley Barcola og Ibrahim Mbaye, en þeir hafa báðir verið orðaðir við Liverpool síðustu vikur.
Barcola og Mbaye voru ekki í leikmannahópi PSG sem gerði 2-2 jafntefli við Rennes í kvöld.
RMC Sport hefur þegar greint frá því að hvorugur þeirra muni spila aftur með liðinu áður en félagaskiptaglugginn lokar.
Liverpool hefur sem kunnugt er átt í viðræðum við PSG um Barcola. Franska félagið hefur þegar hafnað einu tilboði en Liverpool undirbýr nú annað.
Enska félagið hefur einnig áhuga á hinum 18 ára gamla Mbaye en er ekki reiðubúið að greiða þær rúmlega 60 milljónir punda sem PSG krefst fyrir hann.
Campos var spurður hvort frekari tíðinda mætti vænta hjá PSG fyrir lok gluggans, en hann vildi ekki útiloka þann möguleika.
„Félagaskiptaglugginn er langt frá því að vera búinn. Hann er enn opinn og ef við finnum góð tækifæri til að styrkja liðið munum við grípa þau.“
„Svona er þetta á hverju ári. Ég vil minna á það sem gerðist með Gigi Donnarumma á síðasta ári þegar hann fór til Manchester City á lokadegi gluggans. Það gerðist mjög seint.“
„Þú nefndir Barcola og Mbaye. Við sjáum hvað gerist í þeirra málum,“ sagði Campos við Ligue1+.