24.08.26 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Miðjumaður Tottenham nær samkomulagi við Galatasaray

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Senegalski miðjumaðurinn Pape Matar Sarr hefur náð munnlegu samkomulagi við tyrknesku meistarana Galatasaray um kaup og kjör.
Sarr er 23 ára gamall og verið á mála hjá Tottenham frá 2021, en enska félagið hefur þegar hafnað tveimur tilboðum frá Galatasaray.
Fyrra tilboðið hljóðaði upp á 17,1 milljón punda en það síðara nam 21,4 milljónum.
Leikmaðurinn hefur sjálfur náð samkomulagi við Galatasaray um kaup og kjör, en tyrkneska félagið fær harða samkeppni um hann.
Ensku úrvalsdeildarfélögin Aston Villa, Everton og Nottingham Forest hafa öll mikinn áhuga á Sarr. Sádi-arabíska félagið Al Ahli er einnig komið inn í myndina.