Fotbolti.net
24.09.20 - 20:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Klaksvík til Írlands - Færeyskt lið í riðlakeppnina?

Klaksvík mætir Dundalk frá Írlandi.

Klaksvík mætir Dundalk frá Írlandi.

Canon

Mynd: Getty Images

Færeyingar eiga góðan möguleika á því að eignast fulltrúa í riðlakeppni Evrópukeppni á undan Íslandi.
Ísland hefur aldrei átt fulltrúa í riðlakeppni Evrópudeildarinnar eða Meistaradeildarinnar. KÍ Klaksvík er einum leik frá því að komast í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Klaksvík burstaði Dinamo Tibilsi frá Georgíu í Færeyjum í kvöld, 6-1, og er komið að lokastigi forkeppninnar.

Klaksvík mun mæta Dundalk frá Írlandi á útivelli í leik lífs síns um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Dundalk hafði betur gegn Sheriff frá Moldavíu í kvöld, í leik sem fór alla leið í vítaspyrnukeppni.

Færeyjarmeistararnir í Klaksvík duttu út í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar gegn Young Boys og komu inn í þriðju umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.