Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 24. september 2022 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Þjóðadeildin í dag - Albanía heimsækir Ísrael
Albanía mætir Ísrael
Albanía mætir Ísrael
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þjóðadeildin heldur áfram í dag og eru fjölmargir góðir leikir á dagskrá en hæst ber að nefna leik Ísrael og Albaníu í B-deildinni.

Íslenska landsliðið á möguleika á að komast upp í A-deildina en til þess að það gerist þarf Albanía að minnsta kosti að taka stig af Ísrael í dag. Ef það gerist þá mun Ísland spila hreinan úrslitaleik við Albaníu um sæti í A-deildinni á þriðjudag.

Tékkland og Portúgal mætast í A-deildinni klukkan 18:45 og þá spilar Spánn við Sviss á sama tíma.

Leikir dagsins:

A-deild
18:45 Tékkland - Portúgal
18:45 Spánn - Sviss

B-deild
13:00 Armenia - Úkraína
16:00 Slovenia - Noregur
18:45 Skotland - Írland
18:45 Israel - Albanía
18:45 Serbía - Svíþjóð

D-deild
16:00 Norður Írland - Kósóvó
18:45 Kýpur - Grikkland
Athugasemdir
banner
banner