Fotbolti.net
24.09.26 - 14:30
Elvar Geir Magnússon

Allir stjórar ensku úrvalsdeildarinnar fá einkunn fyrir byrjunina á tímabilinu

Dúxinn.

Dúxinn.

Canon

Mynd: EPA

David Moyes hjá Everton er sá stjóri sem hefur staðið sig best það sem af er tímabili í ensku úrvalsdeildinni en Roberto De Zerbi hjá Tottenham hefur staðið sig verst.

Þetta er mat fréttamanna Mirror sem gáfu öllum 20 stjórum ensku úrvalsdeildarinnar einkunnir fyrir byrjunina á tímabilinu.

Moyes hefur þurft að vinna með þunnskipaðan hóp og bundnar hendur eftir misheppnaðan sumarglugga og samskiptaleysi við eiganda félagsins. Liðið er á góðum stað með níu stig og Moyes fær fullt hús fyrir sitt starf.

De Zerbi fær aðeins tvo í einkunn enda Tottenham með tvö stig þrátt fyir rándýr leikmannakaup í sumar. Alvaro Arbeloa fær þrjá í einkunn en byrjun hans með Fulham hefur verið erfið.

Michael Carrick fær einnig falleinkunn, fjóra, en hann hefur átt erfitt uppdráttar eftir að hafa fengið stjórastarfið hjá Manchester United til frambúðar.
Einkunnagjöf Mirror
10 - Everton - David Moyes
9 - Brentford - Keith Andrews
9 - Brighton - Fabian Hurzeler
9 - Hull - Sergej Jakirovic
9 - Leeds - Daniel Farke
9 - Manchester City - Enzo Maresca
8 - Arsenal - Mikel Arteta
8 - Newcastle - Matthias Jaissle
7 - Ipswich - Gary O'Neil
7 - Liverpool - Andoni Iraola
7 - Sunderland - Regis Le Bris
6 - Aston Villa - Unai Emery
6 - Chelsea - Xabi Alonso
6 - Coventry - Frank Lampard
6 - Nottingham Forest - Oliver Glasner
5 - Bournemouth - Marco Rose
4 - Manchester United - Michael Carrick
3 - Crystal Palace - Pierre Sage
3 - Fulham - Alvaro Arbeloa
2 - Tottenham - Roberto De Zerbi

Heimild: Mirror

Carrick fær falleinkunn.

Carrick fær falleinkunn.

Canon

Mynd: EPA

Í júmbósæti.

Í júmbósæti.

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.