24.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ancelotti: Hann er ekki upp á sitt besta núna

Vini Jr

Mynd: EPA

Vini Jr

Mynd: EPA
Carlo Ancelotti, þjálfari brasilíska landsliðsins, er sannfærður um að Vinicius Junior muni finna taktinn á næstunni eftir erfiða byrjun á tímabilinu.
Vini Jr hefur verið gríðarlega mikilvægur bæði Real Madrid og brasilíska landsliðinu undanfarin ár, en hefur fengið nokkra gagnrýni fyrir byrjun sína á tímabilinu.
Hann hefur aðeins skorað eitt mark í átta leikjum, en lagt upp þrjú til viðbótar.
Ancelotti hefur þó litlar áhyggjur af Brassanum sem er í landsliðshópnum fyrir vináttuleiki gegn Ástralíu, Indlandi og Singapúr í þessu landsliðsverkefni.
„Hann er kannski ekki upp á sitt besta núna, en gæði Vini Jr eru óumdeilanleg. Sem dæmi þá spilaði hann frábærlega á heimsmeistaramótinu og sem leikmaður geturðu ekki alltaf verið upp á þitt besta.“
„Hann er stórkostlegur leikmaður og meðal þeirra bestu í heimi. Ég er viss um að hann verður upp á sitt besta í næstu leikjum. Ég hef fulla trú á honum,“ sagði Ancelotti.