Fotbolti.net
24.09.26 - 13:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Landsliðshópurinn - Tveir nýliðar og Sveindís aftur með

Emelía kemur inn A-landsliðið í fyrsta sinn. Emelía er dóttir Óskars Hrafns Þorvaldssonar, þjálfara KR, og yngri systir Orra Steins sem er fyrirliði karlalandsliðsins.

Emelía kemur inn A-landsliðið í fyrsta sinn. Emelía er dóttir Óskars Hrafns Þorvaldssonar, þjálfara KR, og yngri systir Orra Steins sem er fyrirliði karlalandsliðsins.

Canon

Mynd: HB Köge

Eimskip
Þorsteinn H. Halldórsson, landsliðsþjálfari A kvenna, hefur valið hóp sem mætir Króatíu tvívegis í fyrri umferð umspils um sæti á HM 2027.

Fyrri leikurinn fer fram á Stadion Aldo Drosina í Pula í Króatíu föstudaginn 9. október kl. 16:45 að íslenskum tíma. Seinni leikurinn fer svo fram þriðjudaginn 13. október á Laugardalsvelli og hefst hann kl. 17:30.

Miðasala á leikinn á Laugardalsvelli er í fullum gangi á miðasöluvef KSÍ.

Sigurvegari viðureignarinnar mætir annað hvort Norður Írlandi eða Portúgal í seinni umferðinni.

Fjórar breytingar eru frá þessu vali og því sem valið var fyrir síðustu leiki. Emelía Óskarsdóttir (2006) og Líf Joostsdóttir van Bemmel (2007) eru nýliðar í hópnum og þær Ásdís Karen Halldórsdóttir og Natasha Anasi snúa aftur í hópinn. Sveindís Jane Jónsdóttir er klár í slaginn en hún gat ekki spilað með liðinu síðast. Sandra María Jessen glímir við meiðsli og sömu sögu er að segja af Lindu Líf Boama. Ingibjörg Sigurðardóttir er ólétt og Sædís Rún Heiðarsdóttir er ekki með. Sædís hefur ekki verið með í síðustu leikjum Köln í Þýskalandi.
Hópurinn
Markverðir
Telma Ívarsdóttir - Víkingur R. - 12 leikir
Cecilía Rán Rúnarsdóttir - Inter Milan - 31 leikur
Fanney Inga Birkisdóttir - Vålerenga - 8 leikir

Útileikmenn
Hafrún Rakel Halldórsdóttir - Bröndby IF - 18 leikir, 1 mark
María Catharina Ólafsd. Gros - Djurgårdens IF FF - 2 leikir
Glódís Perla Viggósdótttir - FC Bayern München - 148 leikir, 13 mörk
Guðrún Arnardóttir - Hammarby IF - 63 leikir, 1 mark
Arna Eiríksdóttir - Vålerenga - 4 leikir
Natasha Moraa Anasi - Grindavík/Njarðvík - 9 leikir, 1 mark
Líf Joostdóttir van Bemmel - Breiðablik
Alexandra Jóhannsdóttir - Kristianstads DFF - 65 leikir, 7 mörk
Katla Tryggvadóttir - AFC Fiorentina - 13 leikir
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - Inter Milan - 64 leikir, 15 mörk
Ída Marín Hermannsdóttir - Hammarby IF - 9 leikir
Hildur Antonsdóttir - Newcastle United - 37 leikir, 2 mörk
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir - RB Leipzig - 15 leikir, 1 mark
Ásdís Karen Halldórsdóttir - AIK FF - 2 leikir
Birta Georgsdóttir - Parma Calcio 1913 S.R.L. - 2 leikir
Sveindís Jane Jónsdóttir - Angel City FC - 60 leikir, 16 mörk
Hlín Eiríksdóttir - Malmö FF - 60 leikir, 8 mörk
Diljá Ýr Zomers - Brann - 27 leikir, 2 mörk
Emelía Óskarsdóttir - HB Koge
Thelma Karen Pálmadóttir - BK Häcken FF - 5 leikir, 1 mark
Líf fær kallið í hópinn.

Líf fær kallið í hópinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sveindís gat ekki spilað í síðustu leikjum landsliðsins.

Sveindís gat ekki spilað í síðustu leikjum landsliðsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.