24.09.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Bað Neuer afsökunar á fréttamannafundi

Ter Stegen og Neuer saman á æfingu fyrir tveimur árum

Mynd: EPA

Marc-Andre ter Stegen, markvörður þýska landsliðsins, bað Manuel Neuer, fyrrum samherja sinn í landsliðinu, afsökunar á fréttamannafundi í gær.
Neuer lagði landsliðshanskana á hilluna í annað sinn eftir heimsmeistaramótið í sumar og hefur Ter Stegen nú tekið við keflinu.
Ter Stegen er í hópnum hjá Jürgen Klopp fyrir Þjóðadeildina og var spurður út í Neuer. Þar virtist hann aðeins skammast sín, enda eignuðust Neuer og eiginkona hans annað barn á dögunum.
„Manuel varð faðir í annað sinn á dögunum, þannig að ég verð að óska honum til hamingju. Ég hafði ekki komist í það og bið hann afsökunar á því!“ sagði Ter Stegen.
Þeir hittust síðast fyrir heimsmeistaramótið í sumar þegar þeir voru í fríi en annars hefur sambandið ekki verið mikið.
„Við sáum hvorn annan í stuttu fríi, en það var fyrir HM, þannig að það er svolítið síðan.“
Neuer gæti mögulega verið að spila sitt síðasta tímabil í fótboltanum, en hann stendur enn í marki Bayern München og Ter Stegen óskar honum alls hins besta.
„Það er frábært að heilsan sé enn góð og að hann geti spilað áfram. Ég óska honum alls hins besta. Hann er goðsögn í þýska boltanum,“ sagði Ter Stegen.