Fotbolti.net
24.09.26 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson

Bestu unglingalið í heimi mætast í Messi Cup

Bestu unglingalið í heimi mætast í Messi Cup
Canon

Mynd: EPA

Argentínska goðsögnin Lionel Messi hefur staðfest að unglingamótið Messi Cup mun vera haldið annað árið í röð.
Mótið er hugsað fyrir bestu U16 akademíur í heimi og verður haldið í lok október í Miami. Mótið hefst 25. október og stendur yfir í viku, til 1. nóvember.

„Við bjuggum til Messi Cup svo þessir strákar geti fengið að njóta einstakra upplifana bæði innan og utan vallar, á mjög mikilvægum tímapunkti í þroskaferlinu þeirra. Á sama tíma læra þeir hvað það þýðir að keppa á hæsta gæðastigi sem er í boði í fyrir þeirra aldursflokk," segir Messi.

„Við erum mjög ánægð að sjá mótið stækka á milli ára og það er frábært að fá svona mikið af hæfileikaríkum fótboltamönnum sem spila fyrir stór félög um allan heim hingað til að keppa, deila saman mikilvægri lífsreynslu og umfram allt njóta fótboltans."

Fyrsta Messi Cup var haldið í desember í fyrra og gekk vonum framar.

8 lið fengu þátttökurétt í fyrra og vann River Plate úrslitaleikinn eftir 2-0 sigur gegn Atlético Madrid. Manchester City, Barcelona, Chelsea, Inter, Inter Miami og Newell's Old Boys, sem er uppeldisfélagið hans Messi, tóku einnig þátt.

Mótið er tvöfalt stærra í ár þar sem 16 félagslið munu taka þátt. Þau átta félög sem voru með í fyrra hafa skráð sig aftur í ár og bætast önnur skemmtileg félagslið við á borð við Ajax, Arsenal, Benfica og Palmeiras.
Bestu unglingalið í heimi mætast í Messi Cup
Canon

Mynd: Messi Cup

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.