Fotbolti.net
24.09.26 - 16:50
Kári Snorrason

Bilun í flugvél Frakka sem misstu af íslensku lægðinni

Flugvél.

Flugvél.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
U21 landsliðið Íslands tekur á móti U21 liði Frakklands á Pepsi-vellinum í Laugardalnum á morgun í undankeppni EM.

Þó svo að minna en sólarhringur er í leik eru Frakkar þó ekki komnir til landsins. Upphaflega átti liðið að fljúga til Íslands í gær en bilun kom upp í flugvél þeirra og varð að fresta Íslandsförinni um sólarhring.

Liðið þurfti því að halda kyrru fyrir í Frakklandi og æfði þar aftur í morgun áður en haldið var til Íslands síðdegis í dag.
Landsliðsæfingar í Miðgarði og Egilshöll vegna veðursins
TENGT EFNI

Landsliðsæfingar í Miðgarði og Egilshöll vegna veðursins

Hefði bilunin ekki komið upp hefðu Frakkar tekið eina æfingu hér á landi fyrir leikinn. Æfingin daginn fyrir leik fer alla jafna fram á keppnisvellinum en vegna veðurs þurfti íslenska liðið að færa sína æfingu inn í Egilshöll.

Líklegt er að Frakkar hefðu þurft að gera slíkt hið sama en vegna seinkunarinnar á fluginu verður ekkert af æfingu þeirra hér á landi.

Heimild: L'Équipe

Ethan Mbappé er í leikmannahópi Frakklands.

Ethan Mbappé er í leikmannahópi Frakklands.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.