Fotbolti.net
24.09.26 - 17:58
Ívan Guðjón Baldursson

Byrjunarlið kvöldsins: Átta úrvalsdeildarleikmenn gegn Þýskalandi

Byrjunarlið kvöldsins: Átta úrvalsdeildarleikmenn gegn Þýskalandi
Canon

Mynd: EPA

Það eru spennandi slagir á dagskrá í Þjóðadeildinni í kvöld og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.
Holland mætir Þýskalandi í spennandi nágrannaslag og eru átta af byrjunarliðsmönnum heimamanna sem leika í ensku úrvalsdeildinni. Denzel Dumfries er hjá Real Madrid á meðan Tijjani Reijnders og Crysencio Summerville leika í Sádi-Arabíu eftir að hafa báðir verið seldir úr úrvalsdeildinni í sumar. Þá eru þrír úrvalsdeildarleikmenn á bekknum.

Þjóðverjar mæta til leiks með tvo úrvalsdeildarleikmenn í byrjunarliðinu, Kai Havertz og Kevin Schade.

Norðmenn og Danir eigast við í Skandinavíuslag og mæta til leiks með afar sterk byrjunarlið. Erling Haaland og Martin Ödegaard eru á sínum stað í liði heimamanna ásamt Oscar Bobb og Antonio Nusa, á meðan Patrick Dorgu, Rasmus Höjlund, Andreas Christensen, Mikkel Damsgaard og hinn bráðefnilegi Victor Froholdt eru meðal byrjunarliðsmanna Dana, ásamt Morten Hjulmand.

Cristiano Ronaldo og Joao Félix, sem leika líka saman í sóknarlínu Al-Nassr í Sádi-Arabíu, eru í byrjunarliði Portúgal sem tekur á móti Wales í fyrsta leik undir stjórn hins þaulreynda Jorge Jesus.

Rúben Neves er einnig í byrjunarliðinu ásamt úrvalsdeildarleikmönnunum Rúben Dias, Bruno Fernandes og Pedro Neto.

Lewis Koumas, ungstirni Liverpool, er í byrjunarliði Wales ásamt fleiri Championship og úrvalsdeildarleikmönnum. Wales spilar undir stjórn Craig Bellamy og á landsliðið afar erfitt verk fyrir höndum sér í kvöld.

Að lokum eigast Serbía og Grikkland við. Þar má finna kempur á borð við Sergej Milinkovic-Savic, Dusan Tadic, Filip Kostic og Luka Jovic í byrjunarliði Serba á meðan hálft byrjunarlið Grikkja leikur á Englandi.

Þar má finna nafnana Kostas Tsimikas, Tzolakis og Mavropanos, sem leika fyrir Liverpool, Hull City og West Ham, ásamt Charalampos Kostoulas hjá Brighton og Christos Tzolis hjá Arsenal.

Holland: Verbruggen, Dumfries, Van Hecke, Van Dijk, Van de Ven, Q.Timber, Gravenberch, Reijnders, Summerville, Gakpo, Brobbey

Þýskaland: Ter Stegen, Brown, Tah, Schlotterbeck, Treu, Kimmich, F.Nmecha, Musiala, Schade, Adeyemi, Havertz



Noregur: Nyland, Ryerson, Ajer, Heggem, Aursnes, Berge, Berg, Ödegaard, Bobb, Nusa, Haaland

Danmörk: Jörgensen, Christensen, Provstgaard, Andersen, Maehle, Hjulmand, Höjbjerg,



Portúgal: Costa, Cancelo, Veiga, Dias, Mendes, Neves, Vitinha, Fernandes, Neto, Felix, Ronaldo

Wales: Ward, Williams, Cabango, Davies, Dasilva, Sheehan, J.James, Ampadu, Koumas, Brooks, Johnson



Serbía: V.Milinkovic-Savic, Simic, Erakovic, Pavlovic, Kostic, Zivkovic, S.Milinkovic-Savic, Maksimovic, Cvetkovic, Tadic, Jovic

Grikkland: Tzolakis, Vagiannidis, Mavropanos, Retsos, Tsimikas, Karetsas, Kourbelis, Zafeiris, Tzolis, Kostoulas, Pavlidis
Byrjunarlið kvöldsins: Átta úrvalsdeildarleikmenn gegn Þýskalandi
Canon

Mynd: EPA

Byrjunarlið kvöldsins: Átta úrvalsdeildarleikmenn gegn Þýskalandi
Canon

Mynd: EPA

Byrjunarlið kvöldsins: Átta úrvalsdeildarleikmenn gegn Þýskalandi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.