24.09.26 - 11:12
Elvar Geir Magnússon
Ekki í formi þegar hann mætti frá Liverpool

Harvey Elliott kynntur hjá Valencia.

Mynd: EPA

Harvey Elliott kynntur hjá Valencia.

Mynd: EPA
Spænska félagið Valencia fékk Harvey Elliott á láni frá Liverpool út tímabilið. Þessi 23 ára gamli leikmaður var hjá Aston Villa á síðustu leiktíð og kom aðeins við sögu í níu leikjum.
Spænskir fjölmiðlar gagnrýna Elliott fyrir að vera ekki í formi og hann hefur ekki átt góða byrjun í La Liga. Hann hefur enn ekki byrjað leik en komið þrisvar af bekknum.
Spænskir fjölmiðlar gagnrýna Elliott fyrir að vera ekki í formi og hann hefur ekki átt góða byrjun í La Liga. Hann hefur enn ekki byrjað leik en komið þrisvar af bekknum.
Spænska blaðið Marca segir Elliott hafa mætt til Valencia með aukakíló og líkamlegt atgervi hans sé ófullnægjandi. Hann sé að gjalda fyrir það að vera ekki í formi með því að fá lítinn spiltíma.
Blaðamaður Marca hvetur Elliott til að nota landsleikjagluggann til að koma sér í stand.
Elliott fékk lítið að spila hjá Aston Villa en Unai Emery fannst hann ekki nægilega góður og tók þá ákvörðun frekar snemma að hann yrði ekki keyptur alfarið.