Fotbolti.net
24.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Franski boltinn

Fleiri stjörnur bætast í eigendahópinn hjá frönsku félagi

Lucas Leiva er kominn inn í eigendahóp Le Mans

Lucas Leiva er kominn inn í eigendahóp Le Mans

Canon

Mynd: EPA

Tveir hafa bæst í eigendahóp franska félagsins Le Mans, þeir Idrissa Gana Gueye og Lucas Leiva.
Það hefur verið mikill uppgangur hjá Le Mans sem komst upp í frönsku úrvalsdeildina í vor.

Á síðasta ári urðu breytingar á eignarhaldi félagsins. Tenniskappinn Novak Djokovic keypti hlut ásamt ökuþórunum Kevin Magnussen og Felipe Massa og í febrúar bættist belgíski markvörðurinn Thibaut Courtois við eigendahópinn.

Nú hafa tveir fótboltamenn til viðbótar bæst í eigendahópinn. Annar er Senegalinn Idrissa Gana Gueye, sem lék með Everton og Paris Saint-Germain en er nú hjá Al Diriyah í Sádi-Arabíu.

Hinn er fyrrum fótboltamaðurinn Lucas Leiva, sem lék lengi með Liverpool og brasilíska landsliðinu.

Nýliðar Le Mans hafa farið ágætlega af stað í frönsku úrvalsdeildinni og eru með sex stig eftir fimm leiki. Liðið hefur aðeins tapað einum leik.

Idrissa Gana Gueye keypti einnig hlut í félaginu

Idrissa Gana Gueye keypti einnig hlut í félaginu

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.