24.09.26 - 16:00
Kári Snorrason
Frá Meistaravöllum í Meistaradeildina - „Tempóið bara þvæla“
Auglýsing

Hefur spilað þrjá leiki með Viking.

Mynd: Viking Stavanger

Seldur frá KR í sumarglugganum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við undirskrift hjá Viking.

Mynd: Aðsend

Hefur spilað þrjá leiki með Viking.

Mynd: Viking Stavanger
Amin Cosic gekk í raðir Noregsmeistara Viking Stavanger um mitt sumar eftir að hafa átt frábæra byrjun á tímabilinu með KR.
Hann hefur komið við sögu í þremur leikjum með liðinu hingað til, þar af byrjað einn.
Fótbolti.net ræddi við Amin fyrir æfingu U21 landsliðsins í Egilshöll í hádeginu í dag og spurði hann út í fyrstu mánuðina í Stafangri.

„Bara fínir, ég er búinn að læra nóg. Aukin reynsla, Meistaradeildin, ég hef komið eitthvað smá inn á. Vonandi fæ ég að spila meira,“ segir Amin.
Amin var í leikmannahópi Viking sem mætti Stuttgart í Þýskalandi í Meistaradeildinni. Hann kom ekki við sögu í leiknum en segir það hafa verið súrealíska upplifun að taka þátt í Meistaradeildarleik.
„Það er smá skrýtið. Þetta er upplifun, maður var mikið að taka upp myndbönd og senda á vinina. Maður finnur mun á tempóinu í Meistaradeildinni og í Eliteserien.
Maður sér hversu hraðir þessi gaurar eru, alltaf með tvær, þrjár lausnir. Það er mikill munur á þessu og Bestu deildinni. Þetta kemur fljótt vonandi,“ segir Amin og var spurður hvort að munurinn væri meiri en hann bjóst við í fyrstu.
„Já, það var meiri munur á Meistaradeildinni en jú líka í Noregi. Þetta er hærra tempó og færri mistök. Á æfingum í KR vorum við líklegast með mestu ákefðina og tempóið.
En þegar þú ferð þarna þá er meira tempó þar sem það eru færri mistök og boltinn alltaf inni á vellinum. En í Meistaradeildinni er tempóið bara þvæla,“ segir Amin léttur og hlær.
Nánar er rætt við Amin í spilaranum hér að ofan.