Fotbolti.net
24.09.26 - 09:00
Elvar Geir Magnússon

Fyrrverandi eigandi Liverpool látinn

George Gillett var með Alzheimer sjúkdóminn.

George Gillett var með Alzheimer sjúkdóminn.

Canon

Mynd: EPA

George Gillett, fyrrum eigandi Liverpool, er látinn 87 ára að aldri. Þessi bandaríski viðskiptamaður gekk frá yfirtöku á Liverpool árið 2007 ásamt Tom Hicks, sem lést á síðasta ári.

Þeir áttu félagið þar til það var selt til fyrirtækis John Henry, sem síðar varð Fenway Sports Group, í október 2010.
Gillett er einnig fyrrum eigandi íshokkíliðsins Montreal Canadiens auk þess sem hann átti hlut í NFL-félaginu Miami Dolphins og goðsagnakennda körfuboltaliðinu Harlem Globetrotters.

Eigendatíð Gillett og Hicks hjá Liverpool var nokkuð stormasöm og stuðningsmenn mótmæltu eignarhaldi þeirra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.