Fotbolti.net
24.09.26 - 19:08
Ívan Guðjón Baldursson

Hetjan úr bikarúrslitaleiknum áfram í Laugardal

Hetjan úr bikarúrslitaleiknum áfram í Laugardal
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mollee Swift er búin að skrifa undir framlengingu á samingi sínum við Þrótt R. eftir að hafa verið hetja liðsins í úrslitaleik Mjólkurbikarsins fyrr í september.
Mollee, sem er bandarísk, hefur verið meðal bestu markvarða Bestu deildarinnar undanfarin ár og mun næsta ár vera hennar fjórða á milli stanga Þróttar.

Hún er algjör lykilleikmaður í sterku liði Þróttar, sem siglir lygnan sjó í 5. sæti Bestu deildarinnar undir lok tímabils.

Mollee, sem er fædd 2001, á 90 leiki að baki fyrir Þrótt og hlakkar til að bæta fleirum við.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.