24.09.26 - 11:00
Brynjar Ingi Erluson
Kane í NFL-deildina?

Harry Kane

Mynd: EPA

Kane væri til í að spila í NFL-deildinni í framtíðinni

Mynd: EPA

Harry Kane

Mynd: EPA
Harry Kane, fyrirliði enska landsliðsins, útilokar ekki að spila í NFL-deildinni í Bandaríkjunum í framtíðinni, en hann ræddi þann draum sinn í viðtali við Athletic.
Þessi draumur hefur lengi blundað hjá Kane sem nefndi hann fyrst í viðtali árið 2019 og sagði þá að þetta gæti orðið möguleiki eftir tíu til tólf ár.
Hann hefur talað um að draumurinn sé að verða sparkari í NFL-deildinni, enda þekkir hann pressuna sem fylgir því að taka vítaspyrnur og sér ákveðin líkindi þar á milli.
Kane segir að þetta gæti orðið raunhæfara ef hann færi síðar á ferlinum til Bandaríkjanna og spilaði í MLS-deildinni, þar sem mögulega væri hægt að tengja tímabilin saman.
„Kannski ef ég spila í MLS-deildinni í framtíðinni eða eitthvað svoleiðis þar sem maður gæti tengt þetta saman hvað varðar tímabilin.“
„Það er eitthvað sem ég mun reyna og líta alvarlegri augum. Það veltur allt á því hvað gerist á mínum ferli næstu fimm eða sex árin, hvatningunni og hvað ég vil gera. Við skulum alla vega segja að NFL-deildin er mun raunhæfari möguleiki fyrir mig en golf.“
„Ég tek vítaspyrnur og það er svipuð pressa og tækni. Ef ég gerði þetta þá væri ég, hvað æfingar varðar, líklega næst því sporti en einhverju öðru. Ef ég myndi fara út í þetta tæki ég því mjög alvarlega og myndi gefa mér sex mánuði eða ár í að æfa mig,“ sagði Kane.
Hann er nú að ganga frá nýjum samningi við Bayern og verður þessi draumur því að bíða enn um sinn. Á meðan hann heldur áfram að raða inn mörkum fjarlægist NFL-draumurinn, en hann er þó alls ekki dauður.
„En ef fólk telur mig enn hafa gæðin hér í fótboltanum þá er þetta náttúrlega ekki til umræðu,“ sagði Kane.
Brandon Aubrey, leikmaður Dallas Cowboys í NFL-deildinni, er gott dæmi um fótboltamann sem færði sig yfir í aðra íþrótt. Hann var valinn af Toronto FC í nýliðavali MLS-deildarinnar en er í dag einn besti sparkari NFL.
Clive Allen, fyrrum leikmaður Tottenham, spilaði þá einnig með London Monarchs í NFL Europe.